Þátturinn Matur & heimili, í umsjón Sjafnar Þórðar, er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 19 og aftur kl. 21.
Í kvöld verður brot af matarflórunni á Egilsstöðum í forgunni í þættinu. Sjöfn hittir Sigrúnu J. Þráinsdóttur framkvæmdastjóra. Sjöfn heimsækir tvo ólíka veitingastaði sem báðir njóta mikilla vinsælda fyrir sína sérstöðu og matargerð og eru báðir eru í eigu fjölskyldu Sigrúnar. Sá fyrri erSkálinn Diner, sem er innréttaður að amerískri fyrirmynd fyrir Diner og sá eini sinnar tegundar á Íslandi og býður upp á veitingar í anda amerískra dinera frá sjötta áratug síðustu aldar.
„Hugmyndafræðin var að koma með stað sem væri ekki til neins staðar annars staðar og hugmyndina að því að vera með amerískan diner kom pabbi minn, Þráinn, með eftir að hafa verið í Bandaríkjunum að ferðast og skoða staði í þessari mynd,“ segir Sigrún.
Hinn er veitingastaðurinn Glóð, sem er þekktur fyrir sinn einstaka pizzaeldofn, alvöru pizzugerð og sælkeramatseðil sem lokkar inn matargesti hvaðeina að úr heiminum. Staðurinn er við Valaskjálf á Egilsstöðum.
Glóð Restaurant er með notalegt andrúmsloft og hlýleika sem umlykur matargesti. Hönnunin á staðnum vekur eftirtekt þar sem listin og litirnir fanga augað. „Hér höldum við áfram að leika okkur með litina, litirnir gleðja og vekja vellíðan,“segir Sigrún og bætir við að það sé þeirra sérkenni á öllum þeirra stöðum.
„Hugmyndafræðin var að koma með stað sem væri ekki til neins staðar annars staðar og hugmyndina að því að vera með amerískan diner kom pabbi minn, Þráinn, með eftir að hafa verið í Bandaríkjunum að ferðast og skoða staði í þessari mynd,“ segir Sigrún.
Brot úr þættinum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.