fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Svörtu sandar verður til frumsýningar á Berlinale kvikmyndahátíðinni

Fókus
Þriðjudaginn 18. janúar 2022 09:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Berlinale hefur valið Svörtu Sanda sem eitt af sjö verkefnum til frumsýninga utan heimalands, fyrst íslenskra þáttasería. Hátíðin verður haldin í febrúar næstkomandi en nærri 200 verkefni alls staðar að úr heiminum sækja um á ári hverju. Berlinale er ein stærsta kvikmyndahátíð í heiminum sem dregur (í venjulegu árferði) að yfir hálfa milljón manns, þar með talið kvikmyndagerðarfólk og annað fólk í faginu frá yfir 130 löndum.

Í umsögn dómnefndar um Svörtu sanda er seríunni hrósað sérstaklega fyrir dýpt í karaktermótun, óvenjulegan snúning á hina hefðbundnu leit að sökudólg í glæpaseríum með því að leyfa persónulegu lífi og áskorunum karakteranna að vega þyngra en málið sjálft sem þau rannsaka. Þar að auki geri áferð seríunnar, myndatakan og hið fallega umhverfi suðurstrandar Íslands, verkefnið sannarlega einstakt að mati nefndarinnar.

Nú þegar hafa Svörtu sandar verið seld til Kína, Ástralíu, Belgíu, Finnlands, Hollands og Indlands auk þess sem frekari fregna af sölum er að vænta á komandi vikum sem gerir að verkum að þættirnir verða aðgengilegir í meira og minna öllum heiminum.

„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir okkur öll sem stöndum að seríunni. Umsögn dómnefndarinnar hittir okkur beint í hjartastað og virðist skilja fullkomlega okkar sýn á verkefnið. Ég hef alltaf viljað gera sjónvarp sem er áskorun fyrir áhorfendur að horfa á og meðtaka, vinna með raunverulegar tilfinningar, jafnvel óþægilegar og er ótrúlega hreykinn af þessari viðurkenningu sem sköpunarverk okkar í Glassriver og sérstaklega meðhöfunda minna, Aldísar Amah Hamilton og Ragnars Jónssonar, fær með þessu vali,“ segir Baldvin Z, leikstjóri Svörtu sanda, einn höfunda og eigenda Glassriver.

„Við hjá Glassriver erum mjög stolt af þessu afreki Svörtu sanda. Að framleiðslu á svona seríu koma hundruðir einstaklinga, þar sem er hvert og eitt er ómissandi og í þessu verkefni er ljóst að öll hafa skilað sínu og gott betur en það. Við erum sérstaklega þakklát Stöð 2 fyrir að hafa haft trú á verkefninu og auðvitað öllum erlendum meðframleiðendum og samstarfsaðilum sem gerðu okkur það kleift að láta það verða að veruleika, að ógleymdri auðvitað Kvikmyndamiðstöð Íslands og ráðuneytinu fyrir þeirra stuðning og hvatningu,” segir Arnbjörg Hafliðadóttir framleiðandi og einn eigenda Glassriver.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Baldvin Z fer með verk á Berlinale en hann hefur átt góðu gengi að fagna á Locarno í Sviss, Busan í Suður- Kóreu, Toronto í Kanada með fyrri verk sín, Lof mér að falla og Vonarstræti sem er enn mest verðlaunaða verkefni sögunnar á Edduverðlaununum.

Hér er tilvitnun Berlinale dómnefndarinnar um Svörtu sanda:

„The unusual twist to the classic whodunnit, the way we are drawn into small town life, where childhood and teenage trauma is a constant presence, the physicality of the beautifully composed images – all of this and much more makes this series truly unique to us.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi