Leikkonan Julia Fox er vön að vekja athygli með fatavali sínu, þá helst fyrir að velja djarfan klæðnað sem gjarnan er pönkaður og efnislítill.
Julia er hvað þekktust fyrir leik sinn í kvikmyndinni Uncut Gems og fyrir að eiga í stuttu en mjög áberandi ástarsambandi við tónlistarmanninn Kanye West.
Sjá einnig: Julia Fox veldur usla í djarfasta klæðnaðinum til þessa
Nýlega sást til leikkonunnar að spóka sig í Los Angeles þar sem hún vakti athygli fyrir þokkafullan og glæsilegan leðurfatnað og óhefðbundna húfu sem fjölmiðlar hið ytra hafa kallað sundhettu.
Kjóllinn var frá enska merkinu Miscreants og við kjólinn klæddist hún dramatískum hælastígvélum sem náðu upp á læri hennar. Stígvélin eru úr smiðju íslenska merkisins KALDA, sem er merki hönnuðarins Katrínar Öldu Rafnsdóttur, en hönnun hennar hefur vakið athygli út um allan heim.
Miðillinn Aol segir að þó hafi það verið sundhettan sem vakti mesta athygli, enda alls ekki hefðbundinn aukahlutur utan sundlauga.
Julia sagði í samtali við People fyrir nokkru að eftir að hún fór að verða fyrir ágangi paparazzi ljósmyndara hafi hún ákveðið að reyna að klæðast fatnaði sem væri þess virði að mynda.
„Ég meina maður velur og hafnar. Stundum ná paparazzarnir mér og ég lít hræðilega út, skilurðu? Svo ef þeir eru að fara að ná mér, þá gæti ég allt eins gert það besta úr því. Mér finnst eins og ég sé að veita þjónustu, ég er að veita þjónustu, sjónræna þjónustu.“