Kona greip eiginmann sinn glóðvolgan að skoða djörf myndbönd af léttklæddum konum. Hún deildi því á TikTok og fannst það frekar fyndið, en netverjar voru ekki sammála.
Heimili þeirra er með svalir þar sem er hægt að horfa yfir stofuna. Eiginmaðurinn hefur gleymt því og sat í sófanum að skoða myndböndin í símanum sínum þegar eiginkonan tók hann upp.
„Ég myndi frekar vera einhleyp heldur en að þykjast hlæja af þessu,“ segir einn netverji.
„Mér finnst þetta algjör vanvirðing,“ segir annar.
@lyjones0 #fyp #foryou #foryoupage #fypツ #marriedlife #militarywife #relationshipstorytime #marriageadvice #marriage #marriagetips #mixedfamily #floridaman #florida #ohno #ohnonononoo ♬ Oh No – Kreepa
Myndbandið hefur vakið mikla athygli og hafa fjölmiðlar eins og NY Post og Mirror fjallað um það, það var einnig til umræðu í þætti á sjónvarpsstöðinni Fox.
Athæfið hefur komið af stað umræðu um hvað telst vera framhjáhald í samböndum og hvað ekki, hvað er virðingarleysi og hvað ekki og svo framvegis. Það er óhætt að segja að fólk skiptist í fylkingar þegar kemur að þessu.
Hvað segja lesendur?