fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Tíst framkvæmdastjóra um fátækt veldur fjaðrafoki – „Það er fáránleg stéttblinda“

Fókus
Fimmtudaginn 9. september 2021 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Snær Jónsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Nordic Car Rental, skrifaði færslu á Twitter um sósíalisma og fátækt. Tíst hans hefur ollið talsverðu fjaðrafoki og hefur skapast mikil umræða í kjölfarið um fátækt hér á landi og meinta forréttindablindu hinna betur settu.

„Í sinni einföldustu mynd, þá trúa sósíalistar ekki á, að fátækt fólk geti lyft sér upp úr fátækt. Ég hef trú á einstaklingnum og öllu því sem hann hefur fram að færa,“ eru orðin sem Davíð Snær lét falla og varð allt vitlaust í kjölfarið.

Nokkrir þjóðþekktir Íslendingar blönduðu sér í málið, þar á meðal athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, sem reiddi hátt til höggs en missti gjörsamlega marks.

Vissulega nokkuð þétt grillun en illu heilli fyrir Sigmar var um alnafna Davíðs Snæs að ræða. Sigmar var þó ekki af baki dottinn.

 

Sindri Geir, sóknarprestur á Akureyri, sagðist mæta fátæku fólki nánast daglega í sínu starfi.

Jón Heiðar Ragnheiðarson, vörustjóri hjá Meniga og stofnandi ferðatímaritsins Stuck in Iceland, tjáði sig einnig um málið.

Kolbrún Birna H. Bachmann, baráttukona gegn kynbundnu ofbeldi, minnti á að fátækt væri ekki val.

Óskar Steinn, stjórnmálafræðingur, leikskólaleiðbeinandi og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, sagðist fara í ræktina svo hann geti lyft sér upp úr fátækt.

Nafni hans, Sósíalistinn Óskar Steinn Gestsson, lét sig ekki vanta í umræðuna.

Vinsæli Twitter-notandinn Haukur Bragason hafði þetta að segja og kom annar notandi Davíð til varnar.

Nokkrir netverjar spurðu hvernig fólk ætti að fara að því að lyfta sér upp úr fátækt.

Fleiri tíst um málið en netverjar virtust vera nær allir sammála því að vera ósammála Davíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Í gær

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell