fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Tommi byrjaði að drekka 13 ára – „Ég hef oft þakkað Bubba fyrir að ég hafi haldið mér í góðu formi í öll þessi ár“

Bjarki Sigurðsson
Mánudaginn 19. apríl 2021 21:00

Tommi er í flottu formi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tómas Andrés Tómasson er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Tómas, sem er betur þekktur sem Tommi á Búllunni er fyrir löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Tommi hafði rekið Hard Rock Cafe, Hótel borg og marga fleiri staði þegar hann hugðist fara að setjast í helgan stein upp úr aldamótum, en áttaði sig fljótt á því að staðan væri ekki alveg nógu góð:

„Ég seldi borgina 2001 og hélt ég gæti borgað skuldir mínar og átt afgang og farið að að hugsa til þess að verða „grand old man“, en ég skuldaði meira en ég hélt og átti minna en ég átti von á og var miklu blankari en ég hélt. Ég notaði alltaf tvo eyrnapinna eftir sturtu á morgnana, en ég var orðinn svo blankur þarna að ég tímdi bara að nota einn. En það sem vakti mig til lífsins var þegar ég þurfti að kaupa fyrirframgreitt símkort árið 2003.“

Eins og þekkt er orðið gekk Hamborgarabúllan strax mjög vel og áður en langt um leið var búið að opna Búlluna í London og þar varð fljótt mikið að gera líka.

„Einn daginn sáum við það svo að David Beckham var mættur á staðinn til að fá sér hamborgara. Hann var bara í úlpu með sixpensara og strákinn sinn með sér og allt í einu tekur einhver eftir því að hann er þarna og það er fólk sem biður um myndir af sér með honum og þá eigum við myndir af honum inni á staðnum og svo kom hann nokkrum sinnum eftir þetta. Svo opnuðum við á King´s Road og ég veit ekki hvernig á því stóð að þau hjónin leigðu þann stað tvisvar sinnum til að halda afmælisveislu fyrir börnin sín. Þau voru bara þarna eins og hjón úr Breiðholtinu að passa barnaskarann. Við sögðum engum frá þessu, en þetta spurðist út. Og ég segi það núna að ég hefði frekar viljað fá Beckham í heimsókn á staðinn heldur en Bretaprins. Það er öllum vel við Beckham úti um allan heim og allir vilja tengjast honum,“ segir Tommi.

Þó að hann hafi í gegnum tíðina afrekað ótrúlega hluti var leiðin alls ekki alltaf slétt og felld og Tommi segist hafa verið nálægt því að glata öllum sínum tækifærum vegna drykkju:

„Ég byrjaði mjög snemma að drekka, þegar ég var 13 ára gamall og þá opnuðust himnarnir eina ferðina enn. Ég drakk alltaf til að vera fullur og það fór mér illa að drekka. En ég fór að læra kokkinn og maður komst upp með að drekka þar. Ég hætti svo, en byrjaði aftur og þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum átti ég erfitt með að fá vinnu af því að það hafði spurst út að ég væri drykkfelldur. En ég hætti ekki, en var svo heppinn að þáverandi konan mín sagði við á einhverjum punkti:

„Annað hvort hættir þú að drekka vinur eða ég skil við þig.“

Það er engin lygi að mig langaði mest að skilja við hana og halda áfram að drekka, en ég vildi ekki tapa „djobbinu“, þannig að ég tók mig til og drakk ekkert í 3 ár og það var dásamlegur tími. Þessi ár, sem voru í Grindavík, voru á margan hátt mín skemmtilegustu og bestu ár.”

Tommi er í mjög góðu líkamlegu formi og hefur æft mjög reglulega í 40 ár. Hann þakkar Bubba Morthens fyrir það.

„Þegar ég fór á Rokk-showið á Broadway 1981 og sá Bubba beran að ofan varð vendipunktur. Hann hljóp um sviðið allur skorinn og vöðvastæltur. Ég fer heim, á þeim tíma þegar ég bjó á skrifstofunni á Tommaborgurum og horfði í spegilinn og mig langaði að fara að gráta. Ég var svo illa á mig kominn. Þarna byrjaði ég að æfa. Skömmu síðar var ég kominn til Kaliforníu og þá æfði ég í Gold’s Gym eftir að Pumping Iron með Arnold Schwarzenegger. Ég hef æft mjög reglulega alveg síðan. Ef að Bubbi hefði ekki verið þarna ber að ofan hefði ég ekki fengið þessa bakteríu og ég hef oft þakkað Bubba fyrir að ég hafi haldið mér í góðu formi í öll þessi ár.“

Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurumyfir í eignarhald á Hard Rock, Búllunni í London og ótal fleiri hluti.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Í gær

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki