fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Hin ástsæla Betty White látin rétt fyrir 100 ára afmælið

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 31. desember 2021 20:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Betty White er látin, 99 ára að aldri. Hún hefði orðið 100 ára þann 17. janúar.

„Þrátt fyrir að Betty væri að verða hundrað ára þá hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ sagði Jeff Witjas, umboðsmaður Betty og náinn vinur hennar, í samtali við People eftir að tilkynnt var um andlát hennar. „Ég á eftir að sakna hennar hræðilega mikið,“ sagði hann.

Betty hefur verið mikið í fréttum að undanförnu í aðdraganda stórafmælisins og var hún í forsíðuviðtali nýjasta heftis People þar sem hún sagðist ætla að fagna afmælinu í hópi fárra en góðra félaga. Raunar átti blaðið ekki að koma út fyrr en 10. janúar en hluti af greininni er aðgengilegur á netinu.

Hún sló eftirminnilega í gegn sem Rose í The Golden Girls og í þáttunum The Mary Tyler Moore shot. Hún hefur reglulega tekið að sér eftirminnileg hlutverk, stór sem smá, og muna margir eftir henni úr myndinni The Proposal frá 2009 þar sem hún lék á móti þeim Söndru Bullock og Ryan Reynolds.

People greindi frá því að hún hafi síðustu ár lifað rólegu lífi í Los Angaeles þar sem hún glímdi við krossgátur og spilaði mikið á spil. Þá naut hún þess að horfa á heimildaþætti um dýr, spurningaþáttinn Jeopardy! og íþróttaþætti, sérstaklega þætti um golf.

Þá sagði Sandra Bullock í samtali við People, í viðtalinu sem var tekið nokkru fyrir andlát Bettyar, að hún vonaðist til þess að Betty nái að fagna afmælinu „með sama hætti og öllum öðrum dögum – með húmor, kærleika og vodka með klaka.“

Hér má sjá upprifjun á skemmtilegum augnablikum með Betty.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Í gær

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell