fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
Fókus

Druslugangan er á laugardag – Sjáðu myndir frá Pepp-kvöldinu

Fókus
Föstudaginn 23. júlí 2021 18:22

Sara Mansour, Inga Hrönn Jónsdóttir, Eva Sigurðardóttir og Karitas M Bjarkadóttir. Mynd: Mummi Lú

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Druslugangan, samstöðuganga með þolendum kynferðisofbeldis, verður gengin á laugardag, 24. júlí kl. 14 frá Hallgrímskirkju. Allir eru velkomnir í gönguna til að taka afstöðu, skila skömminni og sýna samstöðu með þolendum ofbeldis.

Druslugangan er samstöðuganga með þolendum kynferðisofbeldis og vopn okkar gegn þöggun, skömm og ofbeldi. Þetta er í tíunda sinn sem Druslugangan fer fram og hefur hún stækkað ört frá því hún var fyrst gengin árið 2011 en vegna heimsfaraldurs var hún ekki gengin í fyrra.

Jón Hjörtur Jónsson, Inga Hrönn, Tinna Björg Jónsdóttir og Robin K Håkestad.
Mynd: Mummi Lú

Skipuleggjendur göngunnar segja að það hafi sést í annarri bylgju # metoo í vor að gangan er mikilvæg sem aldrei fyrr og enn er þörf á að berjast gegn því kerfislæga og samfélagslega meini sem ofbeldi er. Kynferðisofbeldi og misbeiting valds á sér stað í öllum kimum samfélagsins og skiptir það lykilmáli að halda umræðunni á lofti og krefjast aðgerða í baráttunni gegn öllu ofbeldi.

Skiltagerð á Peppkvöldinu. Mynd: Mummi Lú

Skipuleggjendur hvetja alla til að taka afstöðu, skila skömminni, sýna samstöðu með þolendum ofbeldis og ganga Druslugönguna og sameinanst í baráttunni gegn ofbeldi og krefjast breytinga.

Dj Hexía, Ólöf Rún Benediktsdóttir, sá um að peppa viðstadda með góðri tónlist. Mynd: Mummi Lú

Meðfylgjandi eru myndir frá peppkvöldi fyrir Druslugönguna sem haldið var á fimmtudagskvöld.

Facebook-viðburður göngunnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bon Jovi snýr loksins aftur eftir erfiða aðgerð – Miðarnir seljast eins og heitar lummur

Bon Jovi snýr loksins aftur eftir erfiða aðgerð – Miðarnir seljast eins og heitar lummur
Fókus
Í gær

Sonur síðasta vitavarðarins í Hornbjargsvita var myrtur í El Salvador

Sonur síðasta vitavarðarins í Hornbjargsvita var myrtur í El Salvador
Fókus
Fyrir 5 dögum

Afhjúpar ástæðuna fyrir því að vináttunni lauk: „Ég hef nú þegar sagt of mikið“

Afhjúpar ástæðuna fyrir því að vináttunni lauk: „Ég hef nú þegar sagt of mikið“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Victoria Beckham virtist skjóta á tengdadótturina: „Algjör fáviti“

Victoria Beckham virtist skjóta á tengdadótturina: „Algjör fáviti“