fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Jónína Ben var dregin til bankastjóra með vopnaða verði: „Rólegur, ég ætla ekki að nauðga þér“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 8. október 2020 10:10

Jónína Ben.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í Podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Í viðtalinu segir Jónína meðal annars sögu af því þegar til stóð að hún myndi opna líkamsræktarstöðvar í Rússlandi.

„Þú skrifaðir nú um það í bókinni þegar ég fór til Rússlands, þegar Björgólfur [Guðmundsson] bauð mér að opna Planet Pulse þar. Þetta var eins og bíómynd,“ segir Jónína við Sölva.

„Þetta var í Pétursborg og ég var þar leidd inn í gamla óperuhöll sem var endalaust margir fermetrar með kristalsljósakrónum úti um allt, en ég þorði ekki annað en að segja: „I am very interested, very interested“, þó að ég sæi strax að það væri hæpið að ná að fylla svo mikið sem eitt herbergi þarna inni. Svo var ég leidd inn til bankastjóra í tengslum við þetta. Það var bakdyramegin í húsi þar sem voru vopnaðir verðir í allar áttir og þegar ég kom loksins upp á skrifstofu bankastjórans var hann einhvers konar Armani-módel með þrjá vopnaða verði í kringum sig og húmoristinn í mér hugsaði strax: „Rólegur, ég ætla ekki að nauðga þér“, en ég pakkaði bara saman fljótt og litla stelpan frá Húsavík hefði ekki höndlað þetta umhverfi lengi.”

Umhugað um heilsu annarra

Jónína segist alltaf hafa haft ástríðu fyrir því að kenna fólki um heilsu.

„Ég er fyrst og fremst kennari og það er það sem hefur alltaf verið ástríða hjá mér. Ég kenndi stundum eróbikk sjö tíma á dag og finnst stundum að ég sé enn að blæða fyrir það og mæli nú ekki með svo mikilli hreyfingu. Og svo borðuðum við Ágústa [Johnson] lakkrískonfekt á kvöldin, af því að okkur fannst það svo gott og fólk var ekkert byrjað að pæla í næringu af neinu viti á þessum tíma,“ segir hún.

Opnar sig um Jón Pál

Á þessum tíma var líkamsræktariðnaðurinn á Íslandi á mikilli siglingu og einn af þeim sem var hve mest áberandi var auðvitað Jón Páll Sigmarsson, sterkasti maður heims. Á milli Jónss Páls og Jónínu var sterkur strengur í mörg ár.

„Jón Páll var einstakur maður. Hann var svo lítillátur og skemmtilegur og fór aldrei fram á neitt. Hann var eins ósérhlífinn og einn maður getur verið. Hann vann hjá mér í þrjú ár og við ferðuðumst mikið saman og elskuðum hvort annað. En það gekk ekki upp og við það lifir maður. Það var alltaf gaman með Jóni Páli og ég gæti sagt þér skemmtisögur af Jóni Páli endalaust og það var Jóhannes heitinn [Jónsson] líka. Hrikalega skemmtilegur maður og kannski er það það sem að ég er að leita í þegar kemur að karlmönnum. Svona hressir galgopagæjar af því að ég nenni ekki að vera alvarleg þegar ég er heima hjá mér. En svo kom sorgin. Ég fór með honum til Ameríku rétt áður en hann deyr og þá fór hann til læknis og fékk í raun dauðadóminn. Honum var sagt að æðakerfið í honum væri eins og í níræðum manni og við vissum eftir það bæði að hann myndi deyja fljótt eftir þetta.”

Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Í viðtalinu fara Sölvi og Jónína yfir tímabilin í líkamsræktinni, tengslin við Jón Pál, íslenskt viðskiptalíf, baráttuna við bakkus og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á þáttinn á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=wGsKJA3KRXA&t=166s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Fyrir 3 dögum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 3 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna