fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Óttaðist að enda sem versta martröð súkkulaðinuddarans

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 4. ágúst 2020 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku fjallaði ég um för mína í hið margumtalaða kynlífsherbergi. Viðbrögðin sem ég fékk við þeirri grein voru afskaplega jákvæð. Þess vegna spurði yfirmaður minn hvort ég hefði ekki áhuga á að fara aftur í svona áhugaverðan rannsóknarleiðangur. Það fannst mér vera góð hugmynd. „En hvað viltu þá gera í þessari viku?“ spurði yfirmaður minn. Ég hugsaði mig um. „Tja, ég væri alveg til í að fara í nudd.“

Þar með var það ákveðið. Ég var að fara í nudd, en ekki bara eitthvert hefðbundið og venjulegt nudd. Nei, ég fór í súkkulaðinudd. Lengi hafði mér fundist gott að borða súkkulaði en aldrei hafði mig grunað að einhvern tímann yrði ég nuddaður upp úr því. Sá möguleiki er nefnilega í boði í Laugar Spa.

Mögulega versta martröð nuddarans

Mér tókst þó eflaust að klúðra nokkurn veginn öllu sem ég átti að gera. Ég mætti of seint, án sundfata og handklæðalaus. Auk þess hafði ég ekki verið að slaka neitt sérstaklega mikið á fyrr um daginn, en ég kom beint úr vinnunni og var auðvitað enn í vinnunni – nýbúinn að drekka nokkra kaffibolla og orkudrykk. Ekkert af þessu hafði verið tekið fram við bókun og ég auðvitað bara nýgræðingur í súkkulaðinuddi. Ég óttaðist að vera martröð nuddarans: Seinn, sundfatalaus og stífur vegna koffínneyslu.

Úr móttöku Laugar Spa var mér fylgt inn í lítið herbergi með nuddbekk og sturtuaðstöðu. Þarna inni voru kertaljós og þægileg tónlist í gangi. Ég var skilinn eftir, en ekki fyrr en mér hafði verið sagt að ég skyldi klæða mig úr fötunum og klæða mig í einnota nærbuxur, eins konar pappírs-þveng sem hægt væri að henda þegar hann væri útataður í súkkulaði, og leggjast á magann á nuddbekknum. Þessum leiðbeiningum fylgdi ég nákvæmlega. Ég ætlaði ekki að gera fleiri mistök.

Súkkulaðisósa

Þetta nudd var í rauninni alls ekkert ólíkt því sem ég hef áður kynnst. Í þetta skiptið var það hins vegar eins konar súkkulaðisósa sem var notuð í stað nuddolíu, en hún er jú reyndar bæði þykkari og heitari en þessi hefðbundna nuddolía. Þá finnur maður einnig sterka lykt af súkkulaði meðan á nuddinu stendur. Sjálft nuddið hefur tekið um það bil klukkutíma og það var mjög notalegt og gott allan tímann.

Að nuddinu loknu spurði ég nuddarann: „Hvers vegna súkkulaði? Hefur það einhver sérstök áhrif?“ Hann sagði mér að í súkkulaði væri mikið um andoxunarefni sem færu mjög vel með húðina. Nú hef ég einnig eitthvað reynt að gúggla mig til um þetta og svo virðist vera að súkkulaði hafi góð og róandi áhrif á líkama og sál. Ég get ekki lagt mat á sannleiksgildi þessara upplýsinga enda enginn sérstakur hafsjór af fróðleik um hvað sé gott fyrir húðina og hvað ekki. En súkkulaði er gott. Eflaust allra meina bót.

Forvarnarauglýsing fyrir brúnkukrem

Ég leit í spegil eftir nuddið og komst að því að ég leit út eins og forvarnarauglýsing fyrir brúnkukrem. Því dreif ég mig í sturtuna. Í dágóðan tíma var niðurfallið einn stór drullupollur. Það var á meðan ég reyndi að skola alla króka og kima vel og vandlega. Það sem ég óttaðist nefnilega hvað mest fyrir þessa ferð mína var að súkkulaðið myndi einhvern veginn festast við húðina á mér og ég þyrfti að kaupa nýtt lak á rúmið mitt daglega í nokkrar vikur. Ég var svo lengi í sturtunni að nuddarinn var farinn að hafa áhyggjur af mér.

Úr sturtunni fór ég síðan í sjálft baðhúsið, eða spa-ið, sem er að mínu mati einstaklega vel hannað og flott. Alls konar gufuböð, laugar, vaskar og aðrar græjur sem ég mæli eindregið með. Eftir baðhúsið klæddi ég mig aftur í og fór út. Þá var komið að því að gera upp. 15.990 krónur er lítið verð fyrir mann sem lætur vinnuveitandann borga fyrir sig.

Minni samskipti við hundinn

Þegar ég keyrði heim til mín komst ég ekki hjá því að finna smá súkkulaðilykt. Hún var greinilega ekki horfin þrátt fyrir þessa löngu og ströngu sturtu mína. Þegar ég kom heim tók elskulegi hundurinn minn á móti mér. Hann er líkt og margir aðrir hundar einstaklega hugulsamur, því vildi hann fá að kyssa mig og sleikja. Mér var þó illa við það að þessu sinni, enda altalað að súkkulaði sé hundum stórhættulegt. Seinna sama dag fór ég aftur í sturtu en alltaf fann ég súkkulaðilyktina.

Þó svo að súkkulaðið hafi góð áhrif á líkamann og að nuddið hafi verið æðislegt, þá verð ég samt að spyrja að leikslokum. Er ekki bara betra að halda áfram að borða súkkulaði og nota olíur í nuddið eins og það hefur verið?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar