Söngleikurinn Matthildur verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld, en söngleikurinn er byggður á samnefndri bók eftir Roald Dahl sem kom út árið 1988. Er bókin oft talin upp með bestu skáldverkum skrifuðum fyrir börn í bókmenntasögunni.
Kvikmynd sem byggð er á bókinni var frumsýnd árið 1996 og naut gríðarlegra vinsælda, og nýtur í raun enn í dag. Myndin á sérstakan stað í hjörtum margra, og er margt líkt með söngleiknum og myndinni þó söngleikurinn sé byggður á bókinni – ekki kvikmyndinni.
DV ákvað að kíkja baksviðs á æfingu á söngleiknum í Borgarleikhúsinu og kanna stemninguna, spjalla við nokkra leikara og komast að því af hverju söngleikurinn Matthildur á svona mikið erindi við Íslendinga í dag.