fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Hjörtur Sævar: „Ekki fara fullur á Facebook“

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 7. desember 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjörtur Sævar Steinason úr Leikhópnum X hefur verið sérlega áberandi í haust. Bæði leikur hann lykilhlutverk í sjónvarpsþáttunum Góðir landsmenn og vakti mikla lukku í hlutverki samnefndrar, samkynhneigðrar vampíru í kvikmyndinni Þorsta. Hjörtur fer á stjá í yfirheyrslu DV þar sem hann rifjar meðal annars upp hvernig tilfinningin er að synda með hákörlum, hvað það var sem drap leiklistaráhugann tímabundið og bestu ráð sem hann hefur fengið í tengslum við samfélagsmiðla.

 

Hvaðan kemur áhuginn á leiklist?
Það hefur alltaf blundað í mér leiklist. En ég var ekki nógu sterkur persónuleiki. Því í kringum 18–20 ára aldurinn var ég með einhverja tilburði í þessa átt og kunningjarnir spurðu mig: „Ertu einhver hommi eða hvað?“ Þetta gjörsamlega drap þessar pælingar hjá mér. Svo var það 2009 sem ég tók þátt í Fangavaktinni að áhuginn kviknaði aftur. Og þetta var svo skemmtilegt að það varð bara að verða eitthvað meira. Eins og þegar maður ánetjast sem svo breytist í frygð sem erfitt er að fróa. Og svo með Leikhópnum X sem finna má á Facebook. Að skrælast með þeim er bara gaman.

Hver var fyrsta vinnan þín?
Þegar ég var 10–15 var ég í blaðburði og lausasölu á blöðum, en þegar ég var 15 ára fékk ég vinnu hjá BP niðri í porti á Laugarnesi

Hvar líður þér best?
Mér líður alls staðar best. Þegar ég geng til rjúpna, fer á gæs eða er með stöng í hönd. Er að jeppast, á vélsleða, leiklistast, vera að fjórhjólast, mótorhjólið eða hvers lags ævintýri. Allt er best.

Hvað óttastu mest?
Ég veit í rauninni ekki hvað það er, en ég er reyndar ánægður að búa á Íslandi þar sem ekki eru tarantúlur eða eitraðar slöngur.

Hvert er mesta afrek þitt?
Kannski þegar ég var einu sinni á hestamannamóti eða á Arnarvatnsheiði, gerðist líka þar, og við vorum í biðröð að grillinu. Það var verið að grilla pylsur og borgara þegar allt í einu stendur eldsúlan út úr slöngunni frá gaskútnum. Það sem gerðist er að allir viðstaddir hlupu frá. Nema ég labbaði að kútnum og strákurinn minn kallaði: „Pabbi, hvað ertu að gera?“ Þá skrúfaði ég bara fyrir gaskútinn og eldurinn dó og allir klöppuðu.

Hver er frægasti einstaklingurinn í símaskránni þinni?
Sennilegast er það Megas. Þótt ég sé með fleiri. Þá er ég svo mikill aðdáandi Megasar.

Besta ráð sem þú hefur fengið?
Ekki fara fullur á Facebook.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Er það til? Þetta er bara vinna eins og svo margt sem maður er ekkert að pæla í, bara gerir hlutina. Reyndar að þurrka af er frekar leiðinlegt.

Hver er fyrirmynd þín í lífinu?
Ég get ekki sagt það upphátt en mamma og konan mín vega þungt.

Besta bíómynd allra tíma?
Mér datt í hug að segja Þorsti en er sennilega of hlutdrægur. En hvað það var skemmtilegt að leika vampíru og drepa mann og annan. Svo þá segi ég bara Gladiator af mörgum.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Ég er nú bara þannig gerður að það fer ekkert í taugarnar á mér. Öllu er tekið með jafnaðargeði.

Hverjir eru mannkostir þínir?
Ef ég sé fólk vera að bogra yfir biluðum bíl eða eitthvað er að einhvers staðar, þá athuga ég hvort ég geti lagt því lið. Ég má ekkert aumt sjá. Konan mín er oft að vitna í þegar við vorum rétt við Hljóðakletta. Þá komum við að biluðum bíl. Það skipti engum togum ég skellti mér undir bílinn beint í moldina í hvítri skyrtu með bindi.

En lestir?
Afbrýðisemi stundum og sjálfsgagnrýni og þó ekki. Ég þykist oft vera kærulaus sem ég er alls ekki. Sem hefur stundum reynst illa því þá hef ég uppskorið vantraust.

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Finna á lyktinni þegar þær eru í látum.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Veit ekki. Kannski þegar ég var á Bahama og fór að kafa. Komu þá, og voru syndandi allt um kring hákarlar. Mér stóð ekki alveg á sama.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Í gær

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum