Manuela Ósk Harðardóttir, samfélagsmiðlastjarna og fegurðardrottning, er ekki alls kostar sátt við spurning sem hún fékk á Instagram. Hún er nú á ferð og flugi erlendis með sigurvegurum fegurðarsamkeppninnar Miss Universe Iceland. Einn fylgjandi hennar spurði hana því: „Hvar eru börnin þín þá þegar þú ert þarna?“
Þessu svarar Manuela í Instagram-sögu sinni. „Þetta er alltaf jafn æðisleg spurning. Hvar heldurðu að þau séu? Ein og yfirgefin einhvers staðar í húsasundi? Æj, ég veit að ég á ekki að láta þetta bögga mig – en þetta er bara hreinn og beinn dónaskapur. Börnin mín eiga, eins og flest önnur börn, stærri fjölskyldu en bara mig eina – heppin þau!,“ skrifar Manuela.
Hún deilir svo skilaboðum frá ónefndum vini. Sú segir: „Sumir halda að fullkomnir foreldrar fari aldrei frá börnunum sínum. Ég veit ekkert betra en að fá frí frá þessum elskum. Elska mínar samt meira en allt. Ekki hlusta á þetta, þú veist að þau eru í góðum höndum annars færir þú ekki frá þeim. Þú ert flott kona, flott mamma og það er gaman að fylgjast með þér. Gangi þér vel með allt þigg,“ skrifar vinur Manuelu og hún skrifar til baka „I love you!“