Athafnakonan og gleðigjafinn Margrét Erla Maack er ólétt af sínu fyrsta barni. Það eru þrjár vikur í settan dag og hefur meðgangan farið vel í Margréti. Hún segir frá því á Facebook og deilir mögnuðu myndbandi þar sem hún sýnir hvernig henni tókst að fela litla bumbubúann fyrr á meðgöngu.
„Ég er búin að eiga svo geggjaða meðgöngu. Það spilar auðvitað ótrúlega margt inn í, en mig langar sérstaklega að benda á hvað magadansþjálfunin hefur haft mikið að segja. Bæði er ég sterk í grindinni en líka hef lært að hlusta á mjóbakið, veit hvað ég þarf að gera meira af og minna af til að láta mér líða vel. Ég gat snemma dreift álaginu um miðjusvæðið og grindarbotninn hefur verið sem stál!“ Skrifar Margrét Erla Maack í færslu á Facebook.
„Í upphafi meðgöngu gat ég t.d. falið Tómasínu mína þegar ég þurfti að vinna og var kannski ekki alveg tilbúin að ræða meðgöngu við ókunnugt fólk – á þessu myndbandi var ég komin 5 mánuði á leið og alveg orðin ágætlega ólétt. Ég hef ekki kastað upp einu sinni og var að kenna dans út 35. viku! Það var mjög gott að geta hent í „SKO ÉG ER KOMIN NÆSTUM ÁTTA MÁNUÐI Á LEIÐ HVER ER YKKAR AFSÖKUN?“ Þegar fólk átti erfitt með að twerka í Beyoncé-gæsapartýunum. Ég kemst enn í splitt og afturábakkollhnís og á von á minni konu eftir 3 vikur.“
Sjáðu hvernig Margréti Erlu tekst að fela bumbubúann í myndbandinu hér að neðan.
„Þetta er svolítið vont en svo eftir getur hún skoppað út,“ segir hún í myndbandinu.