Uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir er um þessar mundir stödd í Edinborg þar sem hún tekur þátt í stærstu sviðslistahátíð í heimi. Þar kemur hún fram 24 sinnum og segir hún hátíðina fara vel af stað. „Þetta er frumraun mín á vegum Fringe Festival og í fyrsta sinn sem uppistandari heldur eigin sýningu sem er lengri en 50 mínútur. Ég er í samstarfi við fyrirtæki að nafni Gilden Balloon sem er langstærsta grínbatteríið hér í Skotlandi. Ég stoppa hér í 26 daga og er með sýningu nánast á hverju kvöldi. Það getur verið stressandi en hefur gengið vel ef frá er talin ein sýning þar sem aðeins þrír áhorfendur mættu í salinn. Ætli það sé ekki eitthvað sem allir uppistandarar verða að ganga í gegnum.“