fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Kristbjörg opnar sig um erfiðleika: „Mér líður eins og ég hafi ekki enn getað meðtekið þetta allt“

Fókus
Miðvikudaginn 3. júlí 2019 13:44

Mynd: Instagram/@krisjfitness

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristbjörg Jónasdóttir, einkaþjálfari, opnar sig um erfiði í nýjustu færslu sinni á Instagram. Kristbjörg er gift landsliðsfótboltamanninum Aroni Einari.

„Ég veit að það er langt síðan að ég deildi [á Instagram] og ég hef ekki verið að svara skilaboðum frá ykkur, en til að vera hreinskilin þá hef ég ekki verið í stuði fyrir það vegna þess að ég hef ekki fundið fyrir hvatningu,“ segir Kristbjörg á Instagram.

„Ekki fyrir svo löngu lenti ég á vegg. Síðustu mánuðir hafa verið svo klikkaðir og mér líður eins og ég hafi ekki enn getað meðtekið þetta allt.

Að vera að pakka, flytja, kveðja fólk og heimili okkar í Cardiff, ferðast (sem er mjög gaman en þreytandi líka), svo margar svefnlausar nætur, missa elsku ömmu mína og horfa á bestu vinkonu mína með krabbamein að berjast fyrir lífi sínu hefur verið erfitt, og samfélagsmiðlar hafa verið það síðasta sem ég hef verið að hugsa um.

Ég mun koma til baka en ég held að við öll höfum stundum gott af því að taka pásu frá samfélagsmiðlum og í lífinu, því það er svo auðvelt að gleyma sér í því sem er í gangi hérna.

Líður einhverjum líka svona stundum?“

https://www.instagram.com/p/BzcqdaFlWmB/

Vinkona Kristbjargar sem hún talar um er Fanney Eiríksdóttir, sem er aðeins 32 ára og berst við krabbamein.

https://www.instagram.com/p/Bu1C9VyFAm8/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Í gær

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum