Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálaprófessor tilkynnir á Facebook-síðu sinni að hann sé að selja jarðhæðina í húsi hans. Ætla má að hann muni enn búa á efri hæðinni. Íbúðin er tæplega 60 fermetra og verðið er um 30 milljónir.
„Nú er jarðhæðin í húsi mínu að Hringbraut 24 komin á sölu hjá Sverri Kristinssyni fasteignasala í Eignamiðlun. Íbúðin er 58 fermetrar, stórt svefnherbergi, stór stofa, nýuppgert eldhús, nýuppgert baðherbergi, geymsla. Í sameign þvottahús og garður. Björt og notaleg íbúð. Bílastæði við Bjarkargötu,“ skrifar Hannes.
Hann bætir við að húsið sé á besta stað í bænum, rétt hjá Háskóla Íslands. „Utanhússviðgerðir skv. áætlun verkfræðings standa yfir á kostnað seljanda (mín), og bera væntanlegir kaupendur engan kostnað af þeim. Á besta stað í bænum fyrir háskólastúdenta og háskólakennara. 5 mínútur í Háskólann, 5–10 mínútur í miðbæinn. Verð mjög sanngjarnt, 32,9 millj. kr. Húsið hefur verið leigt bæði langtímaleigu og á Airbnb, og hafa leigjendur verið mjög ánægðir. Íbúðin getur verið laus strax, og kaupandi getur keypt flesta innanstokksmuni, kæri hann eða hún sig um,“ skrifar Hannes.