fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Hjörtur flytur af landi brott – „Aðstæður sem maður telur vera ákveðna endastöð geta leitt af sér algjörlega nýtt og betra upphaf“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. október 2018 09:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjörtur Hjartarson fyrrum fréttamaður á Sýn horfir nú björtum augum fram á veg, en hann flutti í morgun til Barcelona þar sem hann hyggst stunda mastersnám.

Í lok júní sagði Hjört­ur upp störfum hjá Sýn í kjöl­far þess að hann var send­ur heim af HM í Rússlandi vegna óæski­legr­ar hegðunar. Þar áreitti Hjörtur Eddu Sif Pálsdóttur, íþróttafréttamann á RÚV, var þetta í þriðja sinn sem Hjörtur varð uppvís að óviðeigandi hegðun. Edda Sig kærði Hjört fyrir líkamsárás árið 2012 en þau náðu samkomulagi þar sem hann viðurkenndi fulla ábyrgð og fór málið því ekki fyrir dóm.

„And I´m off! Oft á tíðum geta aðstæður sem maður telur vera ákveðna endastöð leitt af sér algjörlega nýtt og betra upphaf,“ skrifar Hjörtur á Facebook-síðu sína, þar sem hann deilir mynd af sér fyrir utan Leifsstöð með eina ferðatösku. 

„Spennandi ævintýri framundan sem ég hlakka óskaplega mikið til að takast á við.“

Í lok ágúst auglýsti hann íbúð sína að Rauðalæk til leigu og bílinn til sölu, þannig að ljóst er að Hjörtur hyggst vera um tíma á Spáni.

Í kjölfar atviksins á HM í Rússlandi sendu 102 konur í fjölmiðlum frá sér yfirlýsingu vegna hegðunar, þar sem þær kröfðust þess að  yfirmenn  fjölmiðla í landinu tryggðu öryggi þeirra og annarra starfsmanna á vinnustað. Mótmæltu þær því að í stéttinni starfaði maður sem hafi ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi. 

„Ég er þakklátur fyrir reynslu undanfarinna mánuða. Afar þroskandi ferli sem hefur kennt mér mikið, bæði hvað varðar sjálfan mig og ekki síður um hvað ég á mikið af góðu fólki i kringum mig,“ skrifar Hjörtur og bætir við að margra mun hann sakna, en annað sé gott að skilja eftir heima.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
Fókus
Fyrir 3 dögum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“