Í svari Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni, þingmanni Pírata, kemur fram að lengsti tími frá því að beiðni um breytingu á umgengni barns berst embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þar til máli er lokið er 1.852 dagar, eða rúmlega fimm ár. Meðalfjöldi daga er rúmt ár, eða 473 dagar. Á fimm árum getur maður; klárað helminginn af skyldunáminu sínu eða alla menntaskólagönguna og tvö ár af háskóla eða tekið grunnháskólapróf auk meistaragráðu. Fimm ár er hálfur áratugur. Á fimm ára tímabili gæti manneskja kosið til Alþingis tvisvar. Þessi staða hlýtur að þurfa að vera í forgangi hjá stjórnvöldum. Mál foreldra eru bráð og mega vart bíða því tíminn eldir manninn og börnin líka. Eða eiga foreldrar kannski bara að bíða aðeins lengur eftir að börnin verði fullorðin og engin þörf á breytingu á umgengni?