fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Það er sitthvað aldraðir og öryrkjar og bændur og búalið

Eyjan
Föstudaginn 20. mars 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í umræðum um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að miða bætur til aldraðra og öryrkja við launavísitölu fóru þingmenn stjórnarandstöðunnar mikinn og býsnuðust yfir því að vísitölubindingin myndi sliga ríkissjóð og væri í raun óútfylltur tékki inn í framtíðina.

Stjórnarandstaðan tuðaði út í eitt um að vísitölubindingin myndi auk þess grafa undan stöðugleika í hagkerfinu, valda verðbólgu og væri ávísun á hærri vexti en ella. Það myndi með öðrum orðum setja Ísland á hliðina eða jafnvel hvolf að tryggja að kjör fátækasta fólksins í landinu hætti að dragast aftur úr kjörum fólks á vinnumarkaði.

Orðið á götunni er að hroki og tvískinnungur hafa einkennt þennan málflutning stjórnarandstöðunnar og sýnt í hnotskurn með hverjum hjartað slær.

Orðið á götunni er að þessi sama stjórnarandstaða hafi aldeilis ekki alltaf haft áhyggjur af því að vísitölubinding skuldbindinga ríkisins hefði slæm efnahagsleg áhrif. Núverandi búvörusamningur var gerður í febrúar 2016 til 10 ára. Þá voru Framsóknarflokkurinn (undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar) og Sjálfstæðisflokkurinn saman í ríkisstjórninni sem gerði samninginn þannig að segja má að ríkisstjórnin þá sé stjórnarandstaðan í dag.

Sem fyrr segir er samningurinn til 10 ára. Hann er líka vísitölubundinn en þingmönnum stjórnarandstöðuflokkanna þótti í lagi að binda vísitölutryggingu búvörusamninga til 20 ára, en engin slík binding er í lögunum um almannatryggingar. Fjárhæðir í samningnum eru sem sagt uppfærðar í samræmi við verðlagsuppfærslur fjárlaga (þ.e. tengdar þróun verðlags/vísitölu). Verðmæti hans á síðasta ári var um 19 milljarðar króna.

Orðið á götunni er að stjórnarandstaðan hafi ekkert á móti vísitölubindingu skuldbindinga ríkisins gagnvart einstökum hópum í samfélaginu. Bara ekki hvaða hópum sem er. Það er í lagi að vísitölubinda skuldbindinga gagnvart bændum og slíkt ógnar ekki efnahagslegum stöðugleika. En ef rétta á hlut þeirra sem verst eru settir í samfélaginu, aldraðra og öryrkja, ætlar allt um koll að keyra hjá stjórnarandstöðunni. Þá er vá fyrir dyrum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bæjarstjórinn leiðir lista Framsóknar í Hafnarfirði

Bæjarstjórinn leiðir lista Framsóknar í Hafnarfirði