fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Eyjan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um þessar mundir liggja tugir aldraðra einstaklinga fastir á sjúkrahúsum mánuðum saman vegna þess að ekki fæst pláss á hjúkrunarheimilum. Á sama tíma vinnur starfsfólk Landspítalans við stöðugt álag, aðgerðum er frestað aftur og aftur og kerfið er komið að þolmörkum.

Þessi staða kom ekki skyndilega upp. Hún er afleiðing áralangs skorts á uppbyggingu og þess að við höfum vitað lengi að þjóðin er að eldast án þess að búa okkur nægilega undir það.

Það er eðlilegt að almenningur krefjist úrbóta og beini kröfum sínum til stjórnvalda. En umræðan má ekki verða svo einföld að lausnin sé talin felast eingöngu í því að byggja fleiri hús.

Hjúkrunarheimili án starfsfólks leysa engan vanda.

Hjúkrunarrými er nefnilega ekki bara herbergi í húsi heldur hjúkrun allan sólarhringinn fyrir fólk sem ekki getur lengur búið heima og þarf stöðuga faglega aðhlynningu, hjúkrun og umönnun.

Í áratugi hefur verið bent á að skortur á heilbrigðisstarfsfólki væri fyrirsjáanlegur. Um aldamótin lágu fyrir skýrslur og mannaflaspár sem sýndu að stórir hópar sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga myndu hverfa af vinnumarkaði á næstu árum á sama tíma og þörfin fyrir hjúkrun og umönnun myndi aukast. Samt fylgdi nýliðun ekki þróuninni.

Í dag sjáum við afleiðingarnar. Við glímum ekki aðeins við skort á húsum heldur einnig skort á fólki sem þarf til að raunveruleg hjúkrunarrými verði til.

Það tekur skemmri tíma að byggja hús en að mennta fagfólk. Menntun sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga tekur mörg ár og síðan þarf starfsreynslu. Ef ekki verður brugðist við nú með markvissri fjölgun í námi og bættum starfsaðstæðum mun skorturinn halda áfram þó ný hús rísi.

Þetta er ekki vandamál sem ein ríkisstjórn leysir á einu kjörtímabili. Vandinn byggðist upp yfir langan tíma og verður ekki lagaður á einu augabragði. En nú þarf að hefja markvissa uppbyggingu bæði rýma og mannauðs.

Við þurfum líka að ræða kjör og starfsaðstæður þeirra sem starfa í hjúkrun og umönnun. Vaktavinna, álag og launakjör gera það að verkum að margir hætta fyrr en ella eða velja sér annað starf. Á sama tíma vitum við að þörfin fyrir þessa þjónustu mun aðeins aukast.

Við verðum öll gömul. Þetta snertir okkur öll fyrr eða síðar.

Spurningin er því ekki hvort við höfum efni á að bregðast við — heldur hvort við höfum efni á að gera það ekki.

Umræðan þarf að snúast um heildarlausn: húsnæði, menntun, mönnun og starfsaðstæður. Aðeins þannig tryggjum við öldruðum þá reisn og hjúkrun og umönnun sem þau eiga skilið.

Kristín Á. Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður Sjúkraliðafélags Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki