
Haraldur Ólafsson formaður Heimssýnar skrifar:
Vilhjálmur Egilsson ræðir svokölluð Evrópumál í DV 2. janúar sl. Það er laukrétt hjá Vilhjálmi að það sé ekki rétt að taka afstöðu til inngöngu Íslands í Evrópusambandið út frá því hvort eitthvað sé á því að græða í dag, eða yfirhöfuð. Allt slíkt er hverfult. Reglur og aðstæður breytast án þess að Íslendingar fengju nokkru um það ráðið og þótt einhverjum tækist að reikna aur í buddu í dag, gætu þeir reikningar kollvarpast á morgun. Þessa dagana er reyndar mjög erfitt að reikna gróða fyrir Íslendinga af inngöngu í Evrópusambandið, en auðvelt að reikna himinháan kostnað.
Í Evrópusambandinu ræður Evrópusambandið, ekki kjósendur eða stjórnvöld í smáríki í sambandinu. Þar á bæ er sífelldur kliður af fögrum orðum á borð við „öryggi“, „lýðræði“, „mannréttindi“ og „velsæld“. Svipaður söngur heyrist í lúðrum flestra annarra ríkja, en engum dettur þó í hug að ganga í þau. Vera má að þessi ágætu mál séu í betra lagi í Evrópusambandinu en víða annars staðar, en því fer þó fjarri að allt sé þar í allra besta lagi. Í Evrópusambandinu er sótt að ýmsum réttindum á borð við tjáningar-, fjölmiðla- og félagafrelsi og meginhluti þegna sambandsins virðist láta sér það í léttu rúmi liggja. Kannski eru þeir of fátækir til að hugsa um slíkt. Til samanburðar eru lýðræði, öryggi, velsæld og mannréttindi í tiltölulega góðu lagi við núverandi stjórnarfyrirkomulag á Íslandi, þótt lengi megi slíkt bæta. Hætt er við að innganga í Evrópusambandið mundi hleypa málum af þessu tagi í uppnám á Íslandi.
Sé vilji til þess að bæta heiminn, er líklegast til árangurs að Ísland sinni því sem sjálfstætt ríki á alþjóðavettvangi, ekki sem hreppur í sambandi sem aðrir ráða.
Já, Vilhjálmur, við eigum ekki að ganga í Evrópusambandið á röngum forsendum. Við eigum ekki að ganga inn í sambandið nema við séum sátt við að það fái völdin á Íslandi og að við séum sátt við að það valdaframsal sé í framkvæmd óafturkræft. Svarið við spurningu um inngöngu hlýtur því alltaf að vera „nei“. Það er algerlega fráleitt að ganga í Evrópusambandið.