fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Hákon vill 3. sæti Samfylkingar í Kópavogi

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 11. janúar 2026 11:18

Hákon Gunnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hákon Gunnarsson býður sig fram í 3. sæti flokksvals Samfylkingarinnar. Hákon er fæddur og uppalinn í Kópavogi og segir hann í tilkynningu að foreldrar hans hafi verið meðal frumbyggja bæjarins og lagt grunn að því sterka samfélagi sem þar er og bæjarbúar eru stoltir af. 

Hákon hefur komið víða við í íslensku viðskiptalífi. Hann var framkvæmdastjóri Íslenskra getrauna, í framkvæmdastjórn HM 1995 sem haldið var á Íslandi og fjármálastjóri hjá Íslenska járnblendifélaginu.

Framboðsyfirlýsing Hákons hljóðar svo:

Kæru vinir og félagar.

Með stolti og mikilli tilhlökkun hef ég ákveðið að bjóða mig fram í flokksvali Samfylkingarinnar í Kópavogi þann 7. febrúar 2026.   Með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi vil ég halda áfram að vinna að sanngjörnu samfélagi með áherslu á velferð, jafnrétti og sjálfbæra þróun.

Kópavogur hefur alla tíð verið mitt samfélag og þar eru mínar rætur. Foreldrar mínir voru meðal frumbyggja bæjarins, þess harðduglega hópi fólks sem lagði grunninn að því sterka samfélagi sem við erum öll svo stolt af.  Ég gekk í Kópavogsskóla, síðan Víghólaskóla og spilaði á trompet í Skólahljómsveit Kópavogs. Breiðablik hefur ávallt átt hug minn en ég gekk til liðs við félagið 6 ára gamall og hef tengst félaginu alla tíð síðan.  Ég lék bæði með yngri flokkum félagsins með ágætum árangri og spilaði 178 leiki í meistaraflokki auk þess að leika með unglingalandsliðum Íslands. Eftir að ferlinum lauk hef ég gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Breiðablik  og var útnefndur heiðursbliki á síðasta ári. Fáar, ef nokkrar, viðurkenningar eru mér kærari en sú.

Ég er menntaður á sviði hagfræði og stefnumótunar og hef víðtæka reynslu af rekstri, greiningu og stefnumótun í bæði atvinnulífinu og opinbera geiranum.  Frá því ég hóf bein afskipti af bæjarmálum í Kópavogi fyrir síðustu kosningar hefur sá bakgrunnur nýst mjög vel sem varabæjarfulltrúi og aðalmaður í skipulags- og umhverfisráði bæjarins.  Skipulagsmál eru mér ofarlega í huga. Reyndar er það svo að ég brenn fyrir bættu skipulagi til að bæta lífsgæði Kópavogsbúa. Reynslan af störfum mínum á núverandi kjörtímabili hefur sýnt mér að þar liggur bæði brýn nauðsyn og gríðarlegt tækifæri í að innleiða ný og markviss vinnubrögð sem styðja munu betur við samfélagið okkar til framtíðar.

Í leik- og grunnskólum bæjarins eru okkar stærstu framtíðar-verðmæti og við þurfum að styrkja skólana og bæta í samvinnu við kennarana og foreldra.  Samsetning þjóðfélagsins er gerbreytt frá því sem var og því fylgja nýjar áskoranir.  Til að mynda eru Kópavogsbúar sem hafa ekki íslensku að móðurmáli orðnir hátt hlutfall í skólum bæjarins.

Velferðarmálin skipta auðvitað sköpum og við verðum að endurreisa ímynd Kópavogs sem félagsmálabær þar sem aldraðir, öryrkjar og fatlaðir finna til öryggis og tilheyra samfélagi sem tekur vel á móti þeim.

Samfylkingin er í dauðafæri í þessum kosningum til að breyta lykiláherslum í stjórnun bæjarins. Samfylkingin í Kópavogi hefur unnið mikið málefnastarf á kjörtímabilinu en ég er stoltur af því að hafa verið fenginn til að leiða þá vinnu.

Ég er gríðarlega ánægður með að ungt fólk er að bjóða sig fram til forystu í Kópavogi í flokksvalinu þann 7. febrúar.  Það er stórkostlegt hvað margir hafa gengið til liðs við Samfylkinguna  – flokk sem aldrei hefur staðið sterkari en nú, undir öflugri forystu Kristrúnar Frostadóttur. En það þarf líka reynslu og þekkingu á innviðum, fjármálum og sögu bæjarins til að mynda öflugan hóp bæjarfulltrúa fyrir Samfylkinguna í nýjum meirihluta í Kópavogi eftir kosningarnar í vor. Sterk  liðsheild þar sem kraftur og hugmyndaauðgi í bland við áralanga reynslu og þekkingu býr til  sigurstranglegt lið.

Hákon Gunnarsson, 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Kópavogi þann 7. febrúar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki