fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Sigurjón Þórsson, stjórnarformaður Sólheima: Þörf fyrir Sólheima í hverjum landshluta – sjálfbært samfélag kærleiksriddara

Eyjan
Mánudaginn 9. febrúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tugþúsundir heimsækja Sólheima í Grímsnesi á hverju sumri. Þar er umfangsmikil starfsemi og myndarleg byggð sem hýsir m.a. veitingarekstur og gistiþjónustu. Húsakosturinn byggðist að miklu leyti upp í formannstíð Péturs Sveinbjarnarsonar, en lengst af í 100 ára sögum Sólheima hafa verið tveir stjórnarformenn, fyrst Sesselja Sigmundsdóttir og svo Pétur. Sigurjón Þórsson, stjórnarformaður Sólheima, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Það er öðruvísi um að litast þarna núna en þegar tjaldbúðirnar risu sumarið 1930.

„Já, það er mikið vatn runnið til sjávar og margt gerst á þeim tíma. Nánast má segja, með smá fráviki, að það hafi verið tveir stjórnarformenn á Sólheimum. Sesselja var formaður frá upphafi, allt til þess dags sem hún lést, 1974. Þannig að hún er stjórnarformaður þarna í 44 ár. Það verður svona ákveðið millibilsástand þegar hún fellur frá og tekist er á um framtíð starfseminnar á milli þeirra sem að þá. Þjóðkirkjan var náttúrlega alltaf mjög stór hluti af starfseminni. Barnaheimilisnefnd Þjóðkirkjunnar er í raun og veru sú stofnun sem kaupir jörðina á sínum tíma og og leggur inn í sjálfseignarstofnun Sesselju. Þannig að þeir hafa alltaf spilað stórt hlutverk og svo tekur við tímabundið séra Valgeir Ástráðsson og er þarna stjórnarformaður í þrjú ár þar til Pétur Sveinbjarnarson kemur og er alveg frá 1983 til 2017, þannig að hann er í tæp 40 ár líka. Og það má alls ekki gleyma hlutverki hans í starfseminni vegna þess að hann er sá aðili sem, ásamt því frábæra fólki sem hefur starfað í fulltrúaráðinu, sem er svona æðsta stofnun Sólheima. Fulltrúaráðið er skipað 17 einstaklingum sem allir vinna sitt starf í sjálfboðaliðavinnu og líka í stjórn Sólheima. Þannig að það er enginn þarna á öðrum forsendum en hugsjóninni. Það eru ekki fjárhagslegir hagsmunir sem reka fólk áfram að starfa í þágu Sólheima.

En Pétur er náttúrlega algjör lyftistöng fyrir alla uppbyggingu á svæðinu. Flestar af þessum höfuðbyggingum sem þar eru í dag rísa í tíð hans þannig að það má alls ekki gleyma hans merka starfi í þágu samfélagsins.“

Einmitt. Þú nefndir að það er samningur við sveitarfélagið. Skjólstæðingar Sólheima, er þetta aðallega fólk af tilteknu landsvæði eða kemur fólk alls staðar að?

„Við höfum alltaf litið á okkur sem landsúrræði, það er að segja, fólk geti sótt um að að búa á Sólheimum alls staðar af landinu. Auðvitað segir það sig sjálft að þeir aðilar sem samningur er við, sem er byggðasamlag stærsta hluta af Suðurlandi. Það eru þó ekki öll sveitarfélög sem tilheyra byggðasamlaginu en þetta er byggðasamlag sem að heitir Bergrisinn og er sá aðili sem við erum að að semja við. Þeir eðlilega vilja forgangsraða íbúum á svæðinu, en það eru þó mörg dæmi þess að fólk flyst annars staðar að til Sólheima og í dag erum við með 16-17 manns á biðlista og höfum úr 43 plássum að bjóða. Þannig að við erum enn þá staður sem fólk vill búa á og vill vera með.

Í gegnum tíðina hefur fólk haft svona ákveðnar skoðanir á þessu þjónustuúrræði sem Sólheimar hafa upp á að bjóða. En það er nú bara þannig að við erum svo misjöfn eins og við erum mörg að það þarf að vera bara breidd í þjónustuúrvalinu. Og núna, tæpum 100 árum seinna, þá er enn þörf fyrir Sólheima og enn er sókn í að vera á Sólheimum.“

Já. Verður ekki alltaf þörf fyrir úrræði eins og eins og Sólheima?

„Ég vona það. Ég hef heyrt því fleygt bæði innan úr stjórnsýslunni og meðal fagaðila að það þyrftu að vera til Sólheimar í hverjum landshluta. Þannig að það eru margir sem horfa til starfseminnar, eðlilega, vegna þess að við erum mjög opið samfélag. Til okkar á hverju ári koma þúsundir gesta, tugþúsundir gesta yfir sumartímann, og við erum bæði sótt mikið af Íslendingum og ekki síður af af túristum. Það eru margir sem eru á höttunum eftir skilgreiningu okkar, því að við erum hluti af því sem að kallast Ecovillage eða sjálfbær samfélög á heimsvísu. Og erum skilgreind meðal elstu sjálfbæru samfélaga í heiminum. Það er náttúrlega okkar hlutverk, sem höldum á kyndlinum eins og er, að sjá til þess að við stöndum undir þeirri ábyrgð sem okkur er falin að láta starfsemina lifa áfram, alla vega næstu 100 ár.“

Það liggur þá í hlutarins eðli, geri ég ráð fyrir, að fólk sem flyst til Sólheima gerir það þegar það er komið á fullorðinsár.

„Já, í dag er það þannig að þú þarft að vera orðinn 18 ára eða eldri til þess að að koma til okkar. En í tíð Sesselju var þetta þannig að börnin komu barnung. Við ræddum hér um Reyni Pétur áðan. Hann kom til að mynda til Sólheima minnir mig, fjögurra, fimm ára gamall. Ætli hann sé ekki orðinn 76-7 ára ef ég man rétt. Og getur hvergi hugsað sér að vera annars staðar.“

Það verður nú að viðurkennast að þegar maður heyrir Sólheima nefnda, þá dettur manni oft í hug Reynir Pétur og öfugt.

„Já, hann er, að öllum öðrum ólöstuðum, frægasti íbúi Sólheima og hefur náttúrlega gert heilmikið fyrir málaflokkinn. Það er nú styst að minnast þess að hann var heiðraður með riddarakrossi, ja, ætli það séu ekki tvö ár síðan, og það vakti mjög mikla athygli.“

Vel að því kominn.

„Já. En við erum á þeim stað að vera bara í þeim fasa að taka utan um fólkið okkar og halda áfram. Það eru leiðindi að baki. Framkvæmdastjórinn okkar hefur þurft að taka á sig ýmislegt. Meðal annars var hún vænd um það að leggja starfsfólk í einelti og stjórn fékk kæru þess eðlis, sem var sett í farveg, óháðan farveg.

Niðurstaðan úr þeirri rannsókn leiddi í ljós að það var ekki nein innistæða fyrir neinum af þeim umkvörtunum, sem töldust í 14 liðum samkvæmt þessum fagaðila sem tók þetta út. Hún er bara sýknuð af því öllu. Stendur algjörlega undir því að hafa unnið faglegt starf. Og meira að segja er niðurstaða úttektarinnar, sem er mjög vönduð og upp á tæpar 50 blaðsíður, sú að framkvæmdastjóri hafi þvert á móti orðið fyrir, ja, þau kölluðu það ekki einelti, en að minnsta kosti verið nánast gert ógerlegt að sinna sínu starfi vegna þess að þröngur hópur fólks á staðnum, í hópi starfsmanna, gerði henni það varla kleift. Það er mikilvægt að það komi fram vegna þess að það er alltaf minna spennandi þegar fólk er hreinsað, heldur en þegar þegar svona, ja, óvandaður málflutningur segir eitthvert annað.“

Já, það er rétt sem þú segir. Það er ekki eins spennandi, en nú er þetta að baki og það er bjart fram undan. Aldarafmælið er í augsýn. Stendur eitthvað til? Verður haldið upp á það með einhverjum sérstökum hætti?

„Já, mikil ósköp. Þetta eru náttúrlega þannig tímamót að það er alveg orðið tímabært að splæsa í eina afmælisnefnd. Það hefur nú verið gert fyrir minna tilefni og það verður örugglega, þó að ég hafi ekki dagskrána, enda er hún ekki orðin að veruleika, þar verður tjaldað til ýmsu og við munum leggja kapp á það að þjóðin geti tekið þátt í því eins og alla jafna. En hún mun örugglega ekki standa bara einn dag, heldur mun þetta verða hátíð sem er skipulögð yfir heilt ár. Afmælisár.“

Og það verður afmælishátíð samfélags kærleiksriddara.

„Klárlega, og við þurfum að vinna betur með það konsept.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins