fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Þiggur sætið en segir að Heiða Björg hafi átt betra skilið

Eyjan
Sunnudaginn 25. janúar 2026 11:33

Skúli Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segist ætla að þiggja fjórða sætið á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Skúli sóttist eftir 2. sæti listans en þrátt fyrir að hann hafi ekki náð markmiði sínu þá segir hann að það sé ekki hans stíll að gefast upp í mótbyr.

Stóru tíðindin voru þau að Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, laut í lægra haldi fyrir nýliðanum Pétri Marteinssyni í oddvitakjöri flokksins. Heiða Björg lenti í öðru sæti prófkjörsins en Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir hreppti þriðja sætið. Þá vakti það talsverða athygli að Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrum oddviti Pírata, varð að gera sér 9. sæti prófkjörsins að góðu.

Í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni segir Skúli að Heiða Björg hafi á betra skilið úr prófkjörinu.

„Flokksval Samfylkingarinnar var mögnuð lýðræðisveisla sem skilaði miklum breytingum og endurnýjun eins og kallað var eftir. Ég óska nýjum félögum Pétri, Steinunni, Stein Olav og Bjarnveigu Birtu innilega til hamingju með glæsilega kosningu og þakka þann mikla stuðning sem ég fékk þó ég næði ekki mínu markmiði. Heiða átti betra skilið eftir þau miklu og góðu störf sem hún hefur unnið fyrir okkur jafnaðarmenn undanfarin ár en pólitíkin getur verið miskunnarlaus. Ég þakka öllum meðframbjóðendum mínum fyrir kraftmikla keppni sem ég hef mikla trú á að verði Samfylkingunni til góðs. Ég hef verið spurður hvort ég muni taka sætið og ég mun að sjálfsögðu gera það – það er ekki minn stíll að gefast upp í mótbyr. Við þéttum nú raðirnar og mætum til leiks með harðsnúið lið þar sem nýir vindar munu blása en reynslan verður líka um borð. Áfram Samfylking til sigurs í vor!,“ skrifar Skúli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins