Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, og eiginkona hans, Jóga Gnarr Jóhannsdóttir nuddari, eiga hundinn Klaka. Hundurinn kom inn í líf fjölskyldunnar fyrir algjöra tilviljun árið 2018, en Klaki er sjö ára af tegundinni White Swiss Shepherd Dog.
Jón deilir oft myndum af Klaka, hundavinum til mikillar gleði. Í dag deildi hann síðan sögu hundategundarinnar.
„Hundurinn sem Hitler hataði.“
Jón segir að ekki hafi staðið til að fá svona stóran hund og þau hafi eiginlega verið beðin fyrir hundinn.
„Ég hafði aldrei heyrt um þessa tegund áður. Klaki minn vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki enda ljúfur, fallegur og skynsamur. Hann er líka vel upp alinn.
Þessi tegund á rætur sínar að rekja til þýska fjárhundsins, sem upphaflega var ræktaður í Þýskalandi í lok 19. aldar til að gæta sauðfjár og síðar til lögreglu- og hernaðar.
Hvíti liturinn, var einn af upprunalegu litaafbrigðunum. En nasistar, þegar þeir komust til valda, þótti hvíti vera veikgeðja og bönnuðu hann í ræktun og eftir það var hvítum hvolpum lógað. Annars voru nasistar mjög hrifnir af sjeffer og Hitler átti sjálfur tíkina Blondi.
Þar með varð hvíti fjárhundurinn óvelkominn í eigin fjölskyldu.“
Jón rekur að á sama tíma hafi sumir ræktendur, sérstaklega í Bandaríkjunum og Kanada, tekið að sér hvíta fjárhunda og séð fegurð og styrk þar sem aðrir sáu „galla“. Þeir hafi haldið ræktuninni áfram, stundum undir nafninu White Shepherd.
„Þeir voru tryggir, klárir og með mjúka, góða skapgerð.
Á áttunda áratugnum voru hvítir fjárhundar fluttir frá Norður-Ameríku til Sviss, þar sem ræktendur sáu í þeim möguleika á að skapa nýja, sérstaka og viðurkennda tegund.
Eftir vandaða og samviskusama ræktun viðurkenndi FCI (Fédération Cynologique Internationale, alþjóðlega hundaræktunarsambandið) árið 2002 White Swiss Shepherd Dog sem eigin tegund, með sína eigin staðla.
Merkileg saga,“ endar Jón frásögn sína af tegund Klaka.