fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Eyjan
Þriðjudaginn 24. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Langflestir hælisleitendur sem synjað er um hæli hér á landi eru samstarfsfúsir við yfirvöld um að fara aftur til síns heima. Lítill hópur er hins vegar ekki samstarfsfús og því þarf að setja á fót brottfararstöð fyrir það fólk til að hægt sé að tryggja að það fari úr landi. Ísland hefur um langt árabil verið skuldbundið til að koma á fót slíkri stöð og vekur furðu að henni hafi ekki verið komið upp fyrr. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eyjan - Thorbjorg Sigridur - 5
play-sharp-fill

Eyjan - Thorbjorg Sigridur - 5

„Mér hefur fundist gott að finna, og það birtist bara strax í samningaviðræðum þessara þriggja flokka að það var skilningur á því hjá öllum flokkunum þremur að það þyrfti eitthvað að gerast í útlendingamálum. Ég hef afrekað það á mínum sex mánuðum að það hafa verið haldnir mótmælafundir um það að þessi ríkisstjórn standi fyrir opnum landamærum og það hefur verið haldinn mótmælafundur um að við stöndum fyrir lokuðum landamærum,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Hún segir stóra málið í sínum huga vera að ríkisstjórnin sýni að hún hafi stjórn á aðstæðum og það einsetji ríkisstjórnin sér að gera. „Þess vegna erum við að fara í þessar breytingar á lögreglustjóraembættinu á Suðurnesjum og efla það með því að setja upp í fyrsta lagi móttökustöð, einhvers lags greiningarstöð, fyrir fólk sem kemur hingað til lands og er að óska eftir hæli. Þá sé heilsufarstékk og skoðun og svo auðvitað líka að kanna það hverja er um að ræða. Þar verðum við bara að geta talað íslensku og sagt: Það er líka verið að skoða hvort menn eru þeir sem þeir segjast vera.“

Þorbjörg Sigríður segir líka verða um að ræða brottfararstöð. „Þar finnst mér mikilvægt að nefna að í slíkri brottfararstöð er þá fólk sem hefur sótt hér um hæli, fengið synjun, jafnvel í tvígang, en er ekki samvinnufúst um að fara heim. Stór hluti fólks er samvinnufús um að fara heim þannig að þarna yrði lítill hópur sem mikilvægt er að sé á staðnum til að hægt sé að koma þeim úr landi..“

Hún segist heyra að einhverjum þyki þetta harkalegt og hafa skilning á því en það þurfi að vera ákveðin festa í þessum málum. „Það er staðreynd í málinu að Ísland er eina Schengen ríkið sem ekki er með svona úrræði fyrir hendi. Það er líka þekkt, og þetta er rætt á Schengen fundum, þetta er rætt á fundum dómsmálaráðherra í allri Evrópu, að allir svona aðferðafræðilegir útlagar, allar sérreglur, gera það að verkum að við sogum að okkur umsóknir. Við erum eina Schengen ríkið sem ekki er með þetta þannig að það er ekki eins og íslenska ríkisstjórnin sé að finna þetta upp hjá sér. Við höfum raunar verið skuldbundin til þess að vera með svona úrræði í mjög langan tíma, ég held að það sé frá 2008, þannig að það er mér ákveðin ráðgáta að þetta hafi ekki verið komið upp.

Síðan er atriði sem ég þreytist ekki á að nefna: Það er ekki þannig að þarna verði allt fólk sett sem á að fara úr landi heldur bara lítill hópur sem neitar samvinnu um að fara og þarf að tryggja að fari. Ég gæti líka trúað því að bara tilvist svona úrræðis geri það að verkum að það fækki í hópnum sem neitar samvinnu. Bara vitneskjan um að þetta er þá það sem bíður.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri

Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan fær að heyra það fyrir að kvarta undan vinnu á sunnudegi – „Háttvirtir aumingjar“

Stjórnarandstaðan fær að heyra það fyrir að kvarta undan vinnu á sunnudegi – „Háttvirtir aumingjar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“
Hide picture