fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Eyjan

Halla Hrund minnist vinkonu sinnar sem var myrt og segir Alþingi geta haft hugarfar hennar að leiðarljósi – „Heimurinn varð fátækari um helgina“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. júní 2025 12:12

Halla Hrund Logadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, minntist vinkonu sinnar, sem myrt var í Bandaríkjunum um helgina, í þingræðu sinni i dag. Segir hún heiminn fátækari eftir fráfall vinkonu sinnar og gildi hennar og sýn eiga mikið erindi í umræðunni og hvernig við finnum lausnir.

„Heimurinn varð fátækari um helgina þegar að Melissa Hortman vinkona og fyrrum bekkjasystir og maðurinn hennar voru myrt í Bandaríkjunum. Melissa varð ein af 70 einstaklingum á lista morðingjans yfir stjórnmálamenn sem hann var málefnalega ósammála.“

Melissa Hortman

Halla Hrund lýsir vinkonu sinni og segir Melissu hafa verið glaðlynd, algjörlega hrokalaus, eldklár og haft ástríðu fyrir samfélagi sínu. Melissa hafi verið ein þeirra sem veittu Höllu Hrund innblástur í stjórnmálum.

„Henni tókst einhvern veginn að sameina hlýju og festu, hugrekki og langtímasýn. Við deildum áhuga á orkumálum og jafnrétti, en Melissa var einn af höfundum sólarorkulöggjafar Minnesota og hafði stutt við foreldraorlof og frelsi kvenna í löggjöf. Hún studdi við stofnun Stelpur styðja stelpur, enda lyfti hún fólki upp í kringum sig.“

Halla Hrund segir Melissu hafa verið þekkta fyrir að ná árangri í gegnum samstöðu. „Hún gat byggt brýr milli sjónarmiða til þess að ná sátt og árangri fyrir heildina ekki bara fyrir sína kjósendur. Síðasta dæmið var degi áður en hún var myrt, en þá kaus hún ein demókrata með Republikönum um samkomulag um fjárlög til þess að hugsa um heildina koma í veg fyrir fylkið færi ekki í þrot. Þannig stjórnmálamaður var Melissa. Blessuð sé minning Melissu Hortman. Hugur minn er hjá fjölskyldu hennar.“

Halla Hrund segir að fyrir henni sé pólaresérínginn sem með þessum hræðilegu atburðum birtist í Bandaríkjunum líka meira í orðræðunni á landi dæmi um „hversu mikilvægt það er að við stjórnmálamenn reynum að teygja okkur yfir ganginn. Hlustum á mótmæli ólíkra hópa, hér innan þings og utan. Tökum orðræðunni alvarlega án þess að tala niður sjónarmið eða upplifun fólks. Sýnum að við getum verið málefnalega ósammála en samt sest niður og leyst úr ágreiningi.

Þegar að Melissa tók við sem leiðtogi demókrata í þingi Minnesota sagði hún: „Við erum ekki hér til að forðast ágreining. Við erum hér einmitt til að eiga í ágreiningi…. En ef við getum tekist á en haldið í góðan anda og auðmýkt, þá mun okkur ganga betur og fylkinu ganga betur.

Höfum slík orð hugföst nú þegar að við reynum að ná lendingu á þessu þingi. Á meðan samvinna og málamiðlanir skilar kannski minni skrefum í árangri fyrir markmið einstakra flokka þá skilar slíkt oft samhentara þjóðfélagi.

Það er mikið virði í því.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Cleon ráðinn forstöðumaður markaðsmála N1 

Jón Cleon ráðinn forstöðumaður markaðsmála N1 
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís boðar samstarf við aðra flokka

Svandís boðar samstarf við aðra flokka
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump