Nokkur umræða hefur verið undanfarið um að nokkkuð er um að framkvæmdir á veitingastöðum, breytingar á slíkum stöðum og opnanir á nýjum stöðum í Reykjavíkurborg hafi tafist vegna þess tíma sem tekur fyrir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að meðhöndla umsóknir um starfsleyfi og önnur nauðsynleg leyfi. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra hefur kynnt drög að nýrri reglugerð þar sem til stendur að létta starfleyfisskyldu af 23 flokkum atvinnurekstrar. Í ítarlegri Facebook-færslu gagnrýnir Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi Vinstri grænna þessi áform ráðherrans harðlega og vísar í sína persónulegu reynslu til að færa rök fyrir gildi starfsleyfa.
Skemmst er að minnast þess að flokkur Stefáns og flokkur Jóhanns Páls, Samfylkingin, starfa saman í meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Lesa má útlistun á drögunum af reglugerðinni hér.
Stefán hefur mál sitt með því að taka af öll tvímæli um að honum lítist ekkert á áformin:
„Umhverfisráðherra ber sér á brjóst eftir umræðu síðustu daga um veitingastaði sem standa í stappi við heilbrigðiseftirlitið. Hann hefur nú auglýst reglugerð í samráðsgátt stjórnvalda sem gengur út á að fella út starfsleyfisskyldu fyrir ýmis konar rekstur. Mig grunaði hálfpartinn hvað þar myndi leynast… og sjá: sá grunur reyndist réttur!“
Stefán rifjar upp að hann og nágrannar hans í fjölbýlishúsinu sem hann býr í, ásamt fjölskyldu sinni, hafi staðið frammi fyrir því einn góðan veðurdag að í næsta húsi hafi verið opnuð samgöngumiðstöð þaðan sem boðið var upp á rútuferðir til Keflavíkurflugvallar. Það hafi valdið verulegu ónæði á öllum tímum sólarhrings:
„Við tók tímabil þar sem rútur voru ræstar, þær bökkuðu með tilheyrandi viðvörunarblístrum og farangursgeymslum var skellt frá klukkan hálf fjögur á morgnanna og fram yfir miðnætti.“
Nágrannar fjölskyldunnar hafi þó orðið fyrir meira ónæði þar sem þeirra íbúð sé staðsett þannig að þau hafi fundið minna fyrir ónæðinu.
Íbúarnir hafi strax í kjölfarið haft samband við bæði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og skipulagsyfirvöld hjá borginni og fengið þau svör að lítið væri hægt að gera og vísað hafi verið til þess að biðstöð fyrir rútur hafi verið fyrir framan húsið nokkrum áratugum fyrr,
Stefán segir að eitt af þeim fáu tækjum sem íbúarnir hafi ráðið yfir til að bregðast við hafi verið að kalla eftir starfsleyfi samgöngumiðstöðvarinnar en þá hafi sannleikurinn komið í ljós:
„Þá kom í ljós að það var ekkert starfsleyfi, þótt lögin um hollustuhætti og mengunarvarnir teldu samgöngumiðstöðvar sérstaklega upp sem dæmi um starfsleyfisskyldan rekstur. Við spurðum borgina út í hverju þetta sætti og fengum þau svör að þetta hefði eiginlega verið látið slæda vegna þess að fyrir Alþingi lægi frumvarp um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem gerði ráð fyrir að ýmis starfsemi yrði undanskilin þessum reglum – þar með talið samgöngumiðstöðvar.“
Stefán segir að hann og nágrannar hans hafi í skyndi sett saman umsögn þar sem áformunum hafi verið harðlega mótmælt og vísað þá til þeirrar mengunar sem hljótist óneitanlega af slíkri starfsemi. Í kjölfarið hafi verið haldið á fund þeirrar þingnefndar sem hafi verið með frumvarpið til meðferðar og henni bent á gildi starfsleyfa:
„Áttum gott spjall við þingmenn og útskýrðum fyrir þeim að reglur á borð við starfsleyfi fyrirtækja væru ekki settar til þess eins að þvælast fyrir vöskum atvinnurekendum heldur hefðu þær oft líka þann tilgang að vernda fólk á heimilum sínum.“
Stefán segir að tekist hafi að sannfæra þingnefndina sem hafi gert þær breytingar á frumvarpinu að samgöngumiðstöðvar þyrftu áfram starfsleyfi. Borgin hafi því neyðst til að gefa út starfsleyfi sem hafi þó ekki haft mikið að segja:
„Skilyrði um rútuflotann á planinu og hávaðann af honum voru látin liggja milli hluta, líkt og að rútukeyrsla væri ótengd rekstri rútumiðstöðvar. Dæs.“
Umferðin hafi þó snarminnkað við húsið eftir að fyrirtækið sem rak samgöngumiðstöðina hafi misst samning um rútuferðir til Keflavíkurflugvallar.
Stefáni til nokkurs hryllings eru hins vegar samgöngumiðstöðvar samkvæmt reglugerðardrögum Jóhanns Páls rekstur sem mun ekki þurfa starfsleyfi:
„En eins og mig grunaði ætlar Jóhann Páll nú að aflétta starfsleyfisskyldu af samgöngumiðstöðvum, til þess að næstu íbúar sem lenda í því að einhverjir peningamenn sem ákveða að hefja stífan rútuakstur í garðinum þeirra á öllum tímum sólarhringsins verði enn varnarlausari. Nú er ég ekki lögfræðingur en ég á bágt með að skilja hvernig ráðherra á að geta með reglugerð aflétt leyfisskyldu af starfsemi sem þingið er nýlega búið að árétta með breytingu á lögunum um málaflokkinn að skuli áfram vera leyfisskyld.“