Nokkurt uppnám varð á Alþingi fyrr í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra spurði Ingibjörgu Isaksen þingmann Framsóknarflokksins hvort hún kynni ekki að skammast sín en Ingibjörg hafði spurt ráðherrann, í óundirbúnum fyrirspurnatíma, um hvort frumvarp Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra til breytinga á lögum um lífeyrissjóði fæli í sér brot á stjórnarskránni. Efnt var til sérstakrar umræðu í kjölfarið um framgöngu Þorbjargar en hún gaf ekkert eftir og sagði að Ingibjörg gæti ekki bara krafist virðingar hún yrði að sýna hana líka.
Ingibjörg hóf umræðuna og sagði að þingmönnum stjórnarandstöðunnar væri iðulega sýnd vanvirðing í svörum ráherra. Það væri skiljanlegt að ráðherrarnir væru stressaðir en Ingibjörg bætti síðan við:
„Við þurfum samt að vera kurteis hvert við annað. Það er lágmark.“
Vék Ingibjörg síðan að eldhúsdagsumræðum á þinginu sem fram fóru í gærkvöldi. Vildi hún meina að meðan á þeim stóð hafi ráðherrarnir verið flissandi og sýnt alls kyns geiflur í sviðbrigðum sem hafi verið til skammar fyrir Alþingi. Bað hún að lokum Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis um að taka ráðherra ríkisstjórnarinnar í kennslustund í eðlilegri framkomu í þingsalnum.
Þórunn tók stuttlega til orða og sagði að kurteisi og mannasiðir ættu við um alla þingmenn og ráðherra og allir í þessum hópi væru sjálfum sér næstir við að haga sér í samræmi við hlutverk sitt en Þórunn hafði gert athugasemd við orð Þorbjargar í garð Ingibjargar.
Þorbjörg tók næst til máls og var ekki á þeim buxunum að gefa eftir:
„Virðing í samskiptum skiptir miklu.“
Hún sagði að enginn þingmaður sem bæri virðingu fyrir sjálfum sér og Alþingi kæmi upp í ræðustól og léti það sér í léttu rúmi liggja að ráðherrar væru að leika sér að því brjóta stjórnarskrá Íslands. Var henni þá greinilega litið til Ingibjargar:
„Sitja svo núna og skrolla í símanum af því það er erfitt að hlusta á gagnrýnina. Virðing virkar í báðar áttir. Það er mjög alvarlegt að tala með þeim hætti sem háttvirtur þingmaður gerði. Ég svaraði því af festu enda fannst mér hegðunin slík óvirðing við Alþingi að það væri ástæða til að taka það upp.“
Tók Þorbjörg hins vegar undir það með Ingibjörgu að gott væri að ræða samskiptin í þinginu við forseta Alþingis:
„Brýna einstaka þingmenn líka þá sem fengu útreið í síðustu Alþingiskosningum um að haga sér með virðingu á Alþingi.“
Vöktu þessi orð ekki mikla gleði hjá þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem heyrðust hrópa að Þorbjörgu. Í kjölfarið hófst síðan um 45 mínútna löng umræða um framgöngu Þorbjargar þar sem einkum þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku til máls.
Orðaskipti Ingibjargar og Þorbjargar er hægt að sjá hér fyrir neðan.