Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, segir að tími hafi verið komin á aðra forystu innan Sósíalistaflokksins og hann finni fyrir hálfgerðum létti eftir að hafa verið ýtt til hliðar. Þetta kemur fram í umræðum á Rauða þræðinum sem eitt sinn var umræðuvettvangur sósíalista en tengist þó flokknum ekki lengur.
Í greiningu á aðalfundinum fer Gunnar Smári yfir mætinguna á fundinn og hversu fáir kusu í raun núverandi forystu til valda. Alls höfðu 2.448 þátttöku- og atkvæðarétt á fundinum en aðeins 383 skráðu sig inn á fundinn eða 15,6& félagsmanna. Þá kusu til að mynda aðeins 120 manns Sæþór Benjamín Randalsson, eftirmann Gunnars Smára sem formanns framkvæmdastjóra, í stjórnina eða innan við 5% félagsmanna.
Talsverð umræða hefur verið um flótta félagsmanna úr flokknum eftir niðurstöðu kosninganna en fjölmargir hafa greint frá úrsögn sinni úr flokknum á síðustu dögum. Gunnar Smári gefur nýjum valdhöfum heilræði:
„Ég myndi hins vegar vilja benda nýkjörinni forystu á að snúa sér að þeim hluta flokksfólks sem ekki kaus hana. Ef þeir vilja stoppa flóttann. Svo finnst mér skrítið hjá nýrri forystu að segja að 1000 manns hafi sagt sig úr flokknum frá stofnun, eins og það geri flóttann núna minni. Og það er líka undarlegt að telja þá sem hafa hætt í flokknum en ekki þau sem gengið hafa í hann. Það hafa aldrei jafn margir sagt sig úr flokknum á skömmum tíma eins og nú er að gerast. Það kom gusa þegar rógsherferð núverandi forystu hófst í vetur, um tíu manns sögðu sig úr flokknum þegar Sólveig Anna Jónsdóttir yfirgaf flokkinn og fólk hefur gengið úr flokknum með ýmsum skýringum öðrum. En þarna eru líka falskar skráningar, grín-skráningar, tvískráningar og allskonar. Og 1000 manns á rúmum átta árum er einn félagi þriðja hvern dag. Frá aðalfundi hafa hins vegar 73 hætt á þriggja daga fresti. Það er því ekki snjallt hjá nýrri forystu að láta sem ástandið í dag sé ósköp svipað og áður hefur verið. Flokkurinn hefur aldrei fengið viðlíka högg,“ skrifar Gunnar Smári.
Andri Sigurðsson, sem hefur verið atkvæðamikill í Sósíalistaflokknum frá upphafi, bregst illa við og lét formanninn fyrrverandi heyra það.
Á öðrum stað í þræðinum veltir Gunnar Smári því svo upp að um 50-60 nýskráningar hafi verið í flokkinn skömmu fyrir aðalfund sem höfðu þá mikið að segja í ljósi þess hve mæting á fundinn var léleg. Karl Héðinn Kristjánsson, sem kjörinn var í framkvæmdanefnd og hefur verið einn helsti leiðtogi byltingarsinna innan flokksins, sakar Gunnar Smára hins vegar um lygar.
„Hér er logið, það voru einungis um 10 manns sem skráðu sig í flokkinn vikurnar fyrir aðalfund. Og þau voru tengdari Gunnari Smára en öðrum. Við höfðum talað við félaga, sem voru líkt og við, óánægð með starf, skipulag og menningu flokksins. Sérstaklega þá viðleitni að afskrifa alla gagnrýni á mjög óeðlilegan hátt,“ skrifar Karl Héðinn.