fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Eyjan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 13:46

Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Orkureitsins, Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svanins, Bergþóra Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og Orkustofnun, Hilmar Ágústsson, framkvæmdastjóri byggingarfélagsins Safír, Alma Dagbjört Ívarsdóttirog Hulda Einarsdóttir frá Verkvist, við afhendinguna á Svansvottun 4 fyrir byggingu á A-reit Orkureitsins sem sést í bakgrunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta byggingin sem risin er á Orkureitnum, svokallað A hús, hefur hlotið Svansvottun 4, sem er nýr staðall Svansvottunar sem gerir talsvert meiri kröfur en eldri staðall 3. Byggingin er sú fyrsta á Íslandi og öllum Norðurlöndunum til að hljóta Svansvottun samkvæmt staðli 4.

 Svansvottun 4 gerir meðal annars auknar kröfur til dagsbirtugæða, rakaöryggis, heilnæmara efnisvals og betri innivistar fyrir íbúa. Nýja Svansvottunin var veitt byggingarfélaginu SAFÍR, sem er eigandi og umsjónaraðili Orkureitsins, við formlega athöfn á dögunum. Aðrar byggingar á Orkureitnum sem nú eru í byggingu eru í sama ferli og stefnt að Svansvottun þeirra samkvæmt staðli 4 sömuleiðis.

 Fá dagsbirtuvottun frá Svaninum

 Sérstök dagsbirtuvottun er í nýju Svansvottuninni sem byggingin hefur nú fengið en við hönnun íbúða var lögð mikil áhersla á gæði dagsbirtu. Stærð glugga, staðsetning þeirra og val á gleri, ásamt skipulagi rýma, var útfært með það að markmiði að tryggja gott flæði náttúrulegrar birtu um helstu vistarými. Slík hönnun dregur úr þörf fyrir lýsingu yfir daginn og styður við lífsgæði og vellíðan íbúa.

 Einnig var lögð áhersla á rakaöryggi byggingarinnar á hönnunar- og framkvæmdartíma. Sérstök rakaöryggisáætlun felur í sér kröfur sem eru settar fram til að lágmarka skemmdir af völdum raka í byggingu. Svansvottun 4 tekur einnig til heilnæmara efnisvals án skaðlegra efna sem geta valdið ertingu og ofnæmi. Þannig er skapað heilnæmara og öruggara umhverfi fyrir fólk.

 „Mikill sigur að vera fyrst á Norðurlöndunum“

 „Viðmið Svansins eru hert reglulega til að samræmast þeirri tækni og þróun sem byggist upp á markaðinum hvað varðar umhverfismál. Í þessari nýjustu útgáfu nýbyggingarviðmiðanna voru kröfurnar hertar töluvert ásamt því að nýjar kröfur bættust við. Það er því virkilega mikill sigur að vera fyrst á Norðurlöndunum til að hljóta Svansleyfi samkvæmt þessum nýju viðmiðum,“ segir Bergþóra Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og Orkustofnun.

 Bergþóra segir Svansvottaðar byggingar þurfi að uppfylla kröfur um dagsbirtuútreikninga til að tryggja betri innivist. ,,Á Orkureitnum þurfti að gera töluverðar breytingar á hönnun til að uppfylla þær kröfur sem sýnir enn og aftur mikilvægi þess að framkvæmdaraðilar hugi að þessum málum eins og Safír hefur gert. Það eru gríðarleg tækifæri til að gera betur í stórum verkefnum sem þessum og Safír hefur sýnt frumkvæði með því að ákveða að Svansvotta og byggja á BREEAM vottuðum reit þar sem tekið er á þeim fjölmörgu atriðum sem skipta máli þegar kemur að umhverfismálum. Í þessu verkefni hefur verið hugað að innivist, losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfinu, líffræðilegum fjölbreytileika og mörgu öðru,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki