„Hvaða grín er þetta,“ spurði fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason og deildi kvarti Miðflokksmannsins Karls Gauta Hjaltasonar sem varð svo miður sín í gær að hann tók sig til og vitnaði í tilskipun Konstantínusar Rómarkeisara frá árinu 321 til að mótmæla því að þurfa að vinna á sunnudegi.
Miðflokksmenn börðust um helgina með kjafti og klóm gegn því að Ísland standi við skuldbindingar sínar að þjóðarrétti með því að innleiða fyrirbæri sem kallast Bókun 35. Miðflokksmenn telja þetta vera framsal á fullveldi þjóðarinnar, löggjafavaldið sé sent til EES. Fyrir vikið fengu þeir helgina til að lýsa þessari afstöðu sinni ítrekað, en þeim sem og öðrum úr stjórnarandstöðunni sárnaði mikið að þurfa að vinna á sunnudegi.
„Allur sunnudagurinn hefur farið í væl yfir því að þingað sé á sunnudegi. Sjálfhverfa dauðans,“ skrifar rithöfundurinn Hallgrímur Helgason í athugasemd við færslu Egils. Leikmyndahönnuðurinn Aron Bergmann Magnússon velti fyrir sér hvort þingmenn séu ekki bara að vinna sér inn fyrir nýlegri kauphækkun. „Held það ætti að vera í lagi að þau vinni kannski einn sunnudag í mánuði“.
Sósíalistinn Jón Ferdínard Estherarson tekur fram að það hefur lengi þótt í lagi að verkafólk og launþegar vinni vaktavinnu um helgar. „Þetta á sumsé bara við um fína fólkið á Alþingi?“
Virkir í athugasemdum fjölmiðla á Facebook höfðu einnig ýmislegt til málanna að leggja. Eyjan tók saman örfá dæmi en engan veginn er um tæmandi upptalningu að ræða:
Stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson sá ástæðu til að henda í færslu þar sem hann sagði Karl Gauta og aðra Miðflokksmenn „pissa á virðingu Alþingis“:
„Miðflokkstrúðarnir gátu ekki ákveðið sig af hverju þeir mótmæltu þingfundi á sunnudegi. Karl Gauti sagði um nóttina að það væri brot gegn kristnum gildum að vinna á sunnudegi og vísaði í tilskipun Konstantínusar Rómarkeisara frá 321, eftir að hafa haldið 50 ræður um goðin á þjóðveldistímanum, þegar bókun 35 var á dagskrá.
Síðar meir, þegar aðrir þingmenn sögðu að þeir væru uppteknir við önnur þingstörf þennan sunnudag, var önnur plata sett á fóninn; sannkristni Karl Gauti, sem aldrei vinnur á sunnudögum, heldur fer í messu, sagði að hann væri upptökinn við önnur þingstörf. Karl Gauti á að vita sem gömul lögga, að innra samræmi í framburði er alltaf betra.
Karl Gauti og aðrir þingmenn Miðflokksins pissuðu á virðingu Alþingis.
Nú þurfa þingmenn ríkisstjórnarflokkanna að grípa í taumana, samþykkja að ljúka umræðu og senda málið í nefnd.“
Pétur Ívarsson, verslunarstjóri Boss, segir að starfsfólk Kringlunnar sé tilbúið að bjóða fram aðstoð ef stjórnarandstaðan þurfi aðstoð við að vinna úr þessu mikla áfalli.
„Ég vona það svo innilega að alþingismenn fái alla þá aðstoð sem þeir þurfa til að jafna sig á því að hafa þurft að vinna á sunnudegi. Starfsfólk Kringlunnar býður fram aðstoð sína alla daga vikunnar alltaf ef það er e-ð spjall eða aðstoð til að vinna úr áfallinu. Með von um góðan bata.“
Anna Kristjánsdóttir, vélfræðingur og Tenerife-búi, bendir á að sjómenn hafi nú aldrei fengið neina sérstaka helgidaga. Það þurfti að vinna á sunnudögum eins og aðra daga.
Rithöfundurinn Einar Kárason minnir líka á sjómenn. „Skilgreining á aumingjaskap er fólk sem kveinkar sér undan engu. Miðflokksmenn eru miður sín yfir að þurfa að tala í þingsal á sunnudegi. Því við séum kristin þjóð! Ætli þessir ræflar hafi heyrt um sjómenn sem vinna jafnt alla daga vikunnar? Eða bændur og sveitafólk? Vaktavinnufólk? Hafa þeir kveikt á útvarpi eða sjónvarpi um helgar? Maður fer að skilja hversvegna þetta fólk getur ekki komið einfaldri meiningu til skila nema í minnst fimmtíu ræðum.“
Leikarinn Pálmi Gestsson segir engan vorkenna stjórnarandstöðunni. „Við leikarar þekkjum vel vinnu á „ókristilegum tímum“. Vælukjóarnir gætu leyst þetta með því að hætta þessu dómsdags bulli um ekkert. Ef þeir hafa heila hugsun í hausnum ættu þeir að vita að það vorkennir þeim enginn. Enginn!“
Samfélagsrýnirinn Björn Birgisson stingur upp á því að stjórnarandstaðan verði eftirleiðis ávörpuð á þingi sem „háttvirtir aumingjar“