fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Eyjan

Þorbjörg stendur við skammirnar í garð Ingibjargar – „Virðing virkar í báðar áttir“ – Myndband

Eyjan
Föstudaginn 13. júní 2025 13:40

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Ingibjörg Isaksen.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkurt uppnám varð á Alþingi fyrr í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra spurði Ingibjörgu Isaksen þingmann Framsóknarflokksins hvort hún kynni ekki að skammast sín en Ingibjörg hafði spurt ráðherrann, í óundirbúnum fyrirspurnatíma, um hvort frumvarp Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra til breytinga á lögum um lífeyrissjóði fæli í sér brot á stjórnarskránni. Efnt var til sérstakrar umræðu í kjölfarið um framgöngu Þorbjargar en hún gaf ekkert eftir og sagði að Ingibjörg gæti ekki bara krafist virðingar hún yrði að sýna hana líka.

Ingibjörg hóf umræðuna og sagði að þingmönnum stjórnarandstöðunnar væri iðulega sýnd vanvirðing í svörum ráherra. Það væri skiljanlegt að ráðherrarnir væru stressaðir en Ingibjörg bætti síðan við:

„Við þurfum samt að vera kurteis hvert við annað. Það er lágmark.“

Vék Ingibjörg síðan að eldhúsdagsumræðum á þinginu sem fram fóru í gærkvöldi. Vildi hún meina að meðan á þeim stóð hafi ráðherrarnir verið flissandi og sýnt alls kyns geiflur í sviðbrigðum sem hafi verið til skammar fyrir Alþingi. Bað hún að lokum Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis um að taka ráðherra ríkisstjórnarinnar í kennslustund í  eðlilegri framkomu í þingsalnum.

Þórunn tók stuttlega til orða og sagði að kurteisi og mannasiðir ættu við um alla þingmenn og ráðherra og allir í þessum hópi væru sjálfum sér næstir við að haga sér í samræmi við hlutverk sitt en Þórunn hafði gert athugasemd við orð Þorbjargar í garð Ingibjargar.

Virðing báðum meginn

Þorbjörg tók næst til máls og var ekki á þeim buxunum að gefa eftir:

„Virðing í samskiptum skiptir miklu.“

Hún sagði að enginn þingmaður sem bæri virðingu fyrir sjálfum sér og Alþingi kæmi upp í ræðustól og léti það sér í léttu rúmi liggja að ráðherrar væru að leika sér að því brjóta stjórnarskrá Íslands. Var henni þá greinilega litið til Ingibjargar:

„Sitja svo núna og skrolla í símanum af því það er erfitt að hlusta á gagnrýnina. Virðing virkar í báðar áttir. Það er mjög alvarlegt að tala með þeim hætti sem háttvirtur þingmaður gerði. Ég svaraði því af festu enda fannst mér hegðunin slík óvirðing við Alþingi að það væri ástæða til að taka það upp.“

Tók Þorbjörg hins vegar undir það með Ingibjörgu að gott væri að ræða samskiptin í þinginu við forseta Alþingis:

„Brýna einstaka þingmenn líka þá sem fengu útreið í síðustu Alþingiskosningum um að haga sér með virðingu á Alþingi.“

Vöktu þessi orð ekki mikla gleði hjá þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem heyrðust hrópa að Þorbjörgu. Í kjölfarið hófst síðan um 45 mínútna löng umræða um framgöngu Þorbjargar þar sem einkum þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku til máls.

Orðaskipti Ingibjargar og Þorbjargar er hægt að sjá hér fyrir neðan.

video
play-sharp-fill
video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Svandís boðar samstarf við aðra flokka

Svandís boðar samstarf við aðra flokka
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump
Eyjan
Fyrir 1 viku

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
Hide picture