Það hlakkaði í Sólveigu Önnu Jónsdóttir, formanni Eflingar, þegar hún frétti að verðbólgan hefði lækkað um 0,6 prósentustig frá fyrri mánuði, en vísitala neysluverðs lækkaði um 2,24 prósent milli mánaða.
Samkvæmt Hagstofu Íslands varð lækkunin mest á verði í mötuneytum eða 35,9% sem megi að miklu rekja til þess að máltíðir í grunnskólum eru nú gjaldfrjálsar. Sólveig Anna telur að þessi tíðindi leggist ekki vel í Sjálfstæðismenn sem séu ekkert sérstaklega hrifnir af gjaldfrjálsum máltíðum, þá fáir jafn lítið hrifnir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Áslaug Arna hefur kallað ókeypis skólamáltíðir slæma meðferð á almannafé, enda þurfi fæstir foreldrar á slíkum stuðningi að halda.
Sólveig Anna bendir Áslaugu nú á að það sé ekki óskynsamari meðferð á almannafé en svo að verðbólgan lækkar vegna þess. Hún skrifar á Facebook:
„Ánægjulegar fréttir; hljóta að vera ægilegur bömmer fyrir íhaldið. Aumingja Áslaug Arna og Milton vinur hennar.
„Mest lækkun var á verði í mötuneytum eða 35,9% og flugfargjöldum til útlanda, sem lækkuðu um 16,5%. Lækkun í mötuneytum er að miklu leyti komin til vegna þess að máltíðir í grunnskólum eru nú gjaldfrjálsar.“Hádegismaturinn getur semsagt verið ókeypis og með því náð niður verðbólgunni.“