fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Eyjan
Þriðjudaginn 9. júlí 2024 17:30

Guðlaugur Þór Þórðarson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur áhyggjur af þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar og sér í lagi þeim áformum, sem Einar Þorsteinsson borgarstjóri hefur boðað, að allt að 500 íbúðir muni rísa í Grafarvogi á næstu árum. Þetta kemur fram í viðtali við ráðherrann sem birtist í blaði dagsins.

Guðlaugur Þór hefur búið í Grafarvogi í tæpan aldarfjórðung og segir hann að margir íbúar hverfisins hafi áhyggjur af þessum áformum og telji að verið sé að skerða aðgang að útivistarsvæðum sem og þrengt verði að leik- og grunnskólum hverfisins. Þá telji íbúar þéttinguna úr takti við þá byggð sem fyrir er og komi til með að auka umferð um hverfið. Íbúar séu vonsviknir með skort á samráði.

„Það getur skaðað lífsgæðin verulega þegar fólk fer með svona mál í hverfum sem það þekkir ekki til og það er óskiljanlegt að það sé ekki tekið samtal við íbúa,“ segir Guðlaugur Þór í viðtalinu. Segist hann vilja að skoða það að friða Grafarvoginn og styður íbúðaráð hverfisins þær hugmyndir.

„Ég hef áhyggjur af Grafarvoginum sjálfum og hef átt samskipti við borgaryfirvöld út af því að ég vil friða hann og nærsvæðið, til þess að við nýtum hann og grænu svæðin sem þar eru og verndum líka lífríkið og sömuleiðis hugum að menningarminjunum sem þar eru.“

Þá segir hann ennfremur í viðtalinu vera þeirrar skoðunar að Sundagöng séu mun fýsilegri samgöngubót en möguleg Sundabraut.  Göng myndu leysa betur úr umferðarvandanum og ekki þyrfti að fórna útsýni, lífríkinu og útivistarsvæðum á landi og sjó.

Guðlaugur Þór birti viðtalið í heild sinni á Facebook-síðu sinni fyrr í dag

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Eyjan
Í gær

Elliði segir þessa frambjóðendur þá skemmtilegustu – „Kunna þá list að vera mannleg, létt og skemmtileg án þess að verða kjánaleg“

Elliði segir þessa frambjóðendur þá skemmtilegustu – „Kunna þá list að vera mannleg, létt og skemmtileg án þess að verða kjánaleg“
Eyjan
Í gær

Vandræðaleg uppákoma á kosningafundi Trump – Stóð þögull á sviðinu í 20 mínútur

Vandræðaleg uppákoma á kosningafundi Trump – Stóð þögull á sviðinu í 20 mínútur
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Slagur hjá Miðflokknum í Suðurkjördæmi – Samherjatengsl nefnd til sögunnar

Orðið á götunni: Slagur hjá Miðflokknum í Suðurkjördæmi – Samherjatengsl nefnd til sögunnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jakob Frímann: Stutt í ásakanir um rasisma ef fólk bendir á staðreyndir varðandi ástandið á landamærunum

Jakob Frímann: Stutt í ásakanir um rasisma ef fólk bendir á staðreyndir varðandi ástandið á landamærunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arna Lára vill leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi

Arna Lára vill leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Blóðbað í Sjálfstæðisflokknum – níu af sautján þingmönnum fallnir eða í fallhættu

Orðið á götunni: Blóðbað í Sjálfstæðisflokknum – níu af sautján þingmönnum fallnir eða í fallhættu