Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Hildur Sverrisdóttir, hefur kallað þingflokkinn saman til fundar á morgun vegna mögulegs forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Mbl.is greinir frá.
Sterkar vísbendingar eru um að framboð Katrínar sé yfirvofandi en stofnað hefur verið til lénsins katrinjakobs.is og er rétthafi þess sá sami og er skráður greiðandi fyrir katrinjakobsdottir.is sem varð til 11. október.
DV spurði Hildi hvort búast megi við því að rætt verði um mögulegan arftaka Katrínar á fundi Sjálfstæðismanna á morgun og þá á þeim forsendum að ekki sé sjálfgefið að sá arftaki kæmi úr röðum VG. Hildur segir:
„Við munum ræða hvað mögulegt framboð forsætisráðherra gæti haft í för með sér, það þá þar á meðal.“
Aðspurð segir Hildur að hún hafi ekki rætt málið við Katrínu Jakobsdóttur sjálfa. – Álitsgjafar hafa varpað fram þeirri sviðsmynd að framboð Katrínar gæti leitt það af sér að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra yrði forsætisráðherra. DV spurði Hildi hvernig henni litist á það. Hún svaraði af varkárni:
„Tökum eitt skref í einu.“
Í viðtali við mbl.is sagði Hildur:
„Já ég get staðfest að við munum halda þingflokksfund á morgun. Þrátt fyrir að Alþingi sé ekki að störfum finnst mér rétt að boða til þingflokksfundar vegna þessarar stöðu. Þó að ekkert liggi fyrir enn sem komið er finnst mér eðlilegt að við ræðum saman okkar í milli hvað mögulegt framboð forsætisráðherra gæti haft í för með sér.“
Hildur segir að hún telji meiri líkur en minni á því að Katrín fari í forsetaframboð:
„Miðað við þann tíma sem hefur liðið þá myndi ég persónulega halda að það væru meiri líkur en minni. En ég hef ekkert meiri fyrir mér í því heldur en hver annar sem er að fylgjast með þessari atburðarás að svo komnu máli.“