fbpx
Þriðjudagur 05.ágúst 2025
Eyjan

Kolibri og Smitten á lista yfir bestu vinnustaði í Evrópu

Eyjan
Mánudaginn 25. september 2023 14:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir íslenskir vinnustaðir Kolibri og Smitten eru á lista Great Place to Work yfir Bestu Vinnustaði í Evrópu.

GPTW er alþjóðleg stofnun um vinnustaðamenningu.

Könnun GPTW sem ber heitið „Trust Index“™ var lögð fyrir um 2,6 milljón starfsmenn í Evrópu, hjá 3,350 fyrirtækjum í 44 löndum. Til að hljóta viðurkenninguna Bestu vinnustaðir í Evrópu þurfa fyrirtæki að hljóta háa einkunn starfsmanna sinna samanborið við fyrirtæki af sömu stærðargráðu. Einungis 150 fyrirtæki af þessum 3.350 hljóta viðurkenninguna „Bestu vinnustaðir í Evrópu“.

Að hljóta viðurkenningu frá alþjóðlegri stofnun líkt og Great Place to Work hvetur okkur til að halda áfram að vera við sjálf og þróa kúltúrinn okkar áfram. Að vera á lista yfir bestu vinnustaði í Evrópu fyllir okkur sömuleiðis stolti og þakklæti. Við höfum í langan tíma sett fólkið okkar í fyrsta sæti og lagt mikið í vinnustaðamenninguna. Fyrirtækið okkar er ekkert án fólksins sem þar starfar og hver einasta manneskja hefur lagt sitt að mörkum,“ segir Anna Signý Guðbjörnsdóttir framkvæmdarstjóri hönnunar- og hugbúnaðarfyrirtækisins Kolbri.

Davíð Örn Símonarson, forstjóri og stofnandi Smitten, segir það mikinn heiður að vera valinn einn besti vinnustaður Evrópu með fyrirtæki sem er ekki orðið þriggja ára gamalt. „Við leggjum gríðarlega mikinn metnað í réttu ráðningarnar, vinnumenninguna og vinnuaðstöðuna sjálfa, enda fáum við fjölda umsókna í hverri viku frá hæfu fólki sem vill vinna með okkur. Það eru mörg frábær fyrirtæki með góða vinnumenningu Íslandi sem vel eiga heima á þessum lista, en að sama skapi erum við stolt og þakklát fyrir að vera valin einn besti vinnustaður Evrópu. Það er auðvitað enn þá ótrúlegra, þegar maður setur það í samhengi; að það eru rúm 20 milljón fyrirtæki í Evrópu og Ísland á tvo flotta fulltrúa á listanum,“ segir Davíð enn fremur.

Gögnin úr könnun GPTW sýna að með því að skapa vinnustaðamenningu byggða á trausti, þá er starfsfólk ánægðara og skilvirkara, líklegra til að tjá sig, vinna af meiri eldmóð, taka færri veikindadaga og er einbeittara í vinnunni. Einnig skapast meiri samvinna milli starfsfólks og hugsun verður frjórri. Og síðast en ekki síst stolt af því að vinna hjá viðkomandi fyrirtæki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Ozzy er dáinn – en trendar hann?

Nína Richter skrifar: Ozzy er dáinn – en trendar hann?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Samfylkingin og Viðreisn á flugi í nýrri skoðanakönnun – málþófsminnihlutanum refsað

Orðið á götunni: Samfylkingin og Viðreisn á flugi í nýrri skoðanakönnun – málþófsminnihlutanum refsað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“