fbpx
Fimmtudagur 30.október 2025
Eyjan

Sigríður Margrét ráðin framkvæmdastjóri SA

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 12. júní 2023 15:12

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og mun hún hefja störf í september. Þá mun hún jafnframt láta af störfum sem forstjóri Lyfju.

Sigríður hefur starfað sem framkvæmdastjóri og forstjóri íslenskra fyrirtækja í tæp tuttugu ár.  Sigríður hefur auk þess setið í stjórnum margra íslenskra fyrirtækja og hagsmunasamtaka.  Sigríður er með B.Sc. gráðu í Rekstrarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og hefur einnig sótt stjórnendanámskeið hjá IESE Business School og Harvard.

„Öflugt atvinnulíf þýðir að lífskjör á Íslandi verða áfram með því besta sem þekkist í heiminum.  Það er heiður að vera í forsvari fyrir Samtök atvinnulífsins, vinna með atvinnurekendum og þeim öfluga hópi fólks sem starfar hjá samtökunum.  Verkefnin framundan eru brýn, ekki bara fyrir íslenskt atvinnulíf heldur samfélagið allt og ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum,“  segir Sigríður Margrét Oddsdóttir.

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er mikil, verðbólga er há, vextir eru háir og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru lausir eftir 7 mánuði.  Aðilar vinnumarkaðarins hafa átt í ágætu samtali allt frá því að núgildandi skammtímasamningar voru undirritaðir. En það er verk að vinna.  Við náum ekki árangri nema með samstarfi, samtali og sameiginlegri sýn, stjórn Samtaka atvinnulífsins er sammála um það og við fögnum því að fá til liðs við okkur reynslumikinn stjórnanda,“  segir Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins.

Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun sinna hlutverki framkvæmdastjóra SA þar til Sigríður Margrét tekur við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Leiðtogar fylkinga Sjálfstæðisflokksins yfirbjóða hvor annan í stóryrðum vegna bensínlóðamála

Orðið á götunni: Leiðtogar fylkinga Sjálfstæðisflokksins yfirbjóða hvor annan í stóryrðum vegna bensínlóðamála
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þrjár leiðir til að gæta íslenskra hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þrjár leiðir til að gæta íslenskra hagsmuna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Enn bullar Binni blanki – verður að líta í eigin barm

Orðið á götunni: Enn bullar Binni blanki – verður að líta í eigin barm
Eyjan
Fyrir 1 viku

Benedikt Gíslason: Gott tækifæri til að losa heimilin við verðtrygginguna

Benedikt Gíslason: Gott tækifæri til að losa heimilin við verðtrygginguna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Benedikt Gíslason: Samkeppni mikil á íslenskum bankamarkaði – skattsporið stærra en erlendis

Benedikt Gíslason: Samkeppni mikil á íslenskum bankamarkaði – skattsporið stærra en erlendis
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Hildur mætir ólesin í munnlegt próf

Svarthöfði skrifar: Hildur mætir ólesin í munnlegt próf
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Benedikt Gíslason: FBA og Kaupþing undir sama þaki – skrítin stemning í mötuneytinu

Benedikt Gíslason: FBA og Kaupþing undir sama þaki – skrítin stemning í mötuneytinu
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Sigríður nýr þingflokksformaður Miðflokksins

Sigríður nýr þingflokksformaður Miðflokksins