fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Bryndís heyrir reglulega í Grafarvogsbúum sem vilja segja sig úr Reykjavík og heyra frekar undir Mosfellsbæ

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 19. október 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segist heyra reglulega í Grafarvogsbúum sem kvarta sáran yfir því að vera hluti af Reykjavík og vilja frekar heyra undir Mosfellsbæ.

Þetta kom fram í ræðu Bryndísar undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær.

Eins og greint var frá á dögunum lagði Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, það til að Reykjavíkurborg myndi bjóða Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ til viðræðna um sameiningu sveitarfélaganna þriggja.

Tímasóun, sagði bæjarstjórinn

Hugmynd Lífar féll ekki vel í kramið alls staðar og sagði Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, í samtali við Morgunblaðið í vikunni að slíkar hugmyndir væru tímasóun og tíma borgarstjórnar væri illa varið í þær. Svipað var upp á teningnum hjá Regínu Ásvaldsdóttur, bæjarstjóra í Mosfellsbæ.

Bryndís sagðist skilja vel að borgarfulltrúar í Reykjavík horfi til nágrannasveitarfélaganna þar sem ýmislegt virðist ganga betur í rekstri þeirra sveitarfélaga.

„Ég held að við ættum kannski frekar að huga að því að það kunni að vera hverfi innan Reykjavíkur sem myndu vilja sameinast öðrum sveitarfélögum. Ég hef til að mynda reglulega heyrt í Grafarvogsbúum sem kvarta sáran yfir því að vera hluti af Reykjavík og því kerfi sem þar er boðið upp á, myndu svo gjarnan vilja fá að koma yfir í fallegu Mosfellssveitina og heyra frekar undir bæjarstjórn Mosfellsbæjar,“ sagði Bryndís í ræðu sinni.

Geti sagt sig úr Reykjavík

Þá sagðist hún líka heyra það á íbúum á Seltjarnarnesi og bæjarfulltrúum þar að kannski sé möguleiki að fólkið í Vesturbænum myndi vilja sameinast íbúum Seltjarnarness í að bæta samgöngumálin. Seltirningar og margir í Vesturbænum hafi kvartað sáran yfir því að það sé algerlega lokað á þá þegar kemur að samgöngumálum og ekki við þá rætt þegar verið er að gera stórtækar breytingar sem hafa áhrif á samgöngur þeirra og öryggismál Seltirninga.

„Ég vil þá frekar beina því til hverfafélaganna í Reykjavík að huga að því hvort þau geti bara hreinlega sagt sig úr Reykjavík og óskað eftir því að koma inn í sveitarfélögin hér í kring sem virðast vera mun betur rekin en höfuðborgin okkar.“

Inga Sæland ekki sátt

Ræða Bryndísar féll ekki í kramið hjá öllum þingmönnum og kom Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, inn á hana þegar hún steig í pontu. Sagðist Inga ekki geta orða bundist.

„Ég veit ekki betur en að Seltirningar og Mosfellingar séu að koma unnvörpum til að vinna í bænum í Reykjavík. Ég veit ekki betur en að maður hangi á rauðu ljósi endalaust stopp í umferðinni þegar strollan frá Mosfellsbæ er að koma hérna niður í bæ. Ég veit ekki betur. Ég held líka að það væri bara flott að við sameinuðum allan þennan kjarna. Í stað þess að vera að troða landsbyggðarbæjarfélögum með marga tugi kílómetra á milli hvers annars, að reyna að henda þeim í sameiningu, þá væri bara sómi að því að maður standi ekki með aðra löppina í einu sveitarfélagi og hina löppina í öðru sveitarfélagi og móist svo við því að bara hreinlega steypa þessu saman. Það væri kannski bragur að því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Lífleg útgáfa hjá sagnfræðingum í Háskóla Íslands

Lífleg útgáfa hjá sagnfræðingum í Háskóla Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórdís Kolbrún svarar gagnrýni Hannesar – „Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu“

Þórdís Kolbrún svarar gagnrýni Hannesar – „Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Efins um að Valkyrjustjórnin verði að veruleika – „Eins og við séum að horfa á eitthvað leikrit“

Efins um að Valkyrjustjórnin verði að veruleika – „Eins og við séum að horfa á eitthvað leikrit“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þetta ætlar Áslaug Arna að gera í desember

Þetta ætlar Áslaug Arna að gera í desember