fbpx
Mánudagur 04.ágúst 2025
Eyjan

Verða starfsmenn 3 daga á skrifstofunni árið 2030?

Eyjan
Mánudaginn 2. október 2023 13:30

Gísli Þorsteinsson, viðskipta- og vörustjóri hjá Opnum kerfum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verður blönduð vinna (e. Hybrid) allsráðandi árið 2030? Sumir vilja ganga svo langt og telja að slík vinna verði ráðandi þar sem starfsfólk geti blandað saman fjarvinnu og samvinnuverkefnum.

Módelið er talið veita starfsfólki sveigjanleika og er ekki síður góð nálgun fyrir vinnuveitendur,“ segir Gísli Þorsteinsson, viðskipta- og vörustjóri hjá Opnum kerfum. „Segja má að þessi nálgun muni með tíð og tíma skapa fyrirsjáanleika á vinnustöðum sem tryggi bæði hag vinnuveitenda og starfsfólks. Sem dæmi ef starfsfólk tæki ákvörðun um að mæta þrjá daga í viku væru mestar líkur á að það mundi velja þriðjudag-fimmtudag,“ segir Gísli. Hann hélt kynningu á vinnustað sínum um blandaða vinnu. Um leið greindi hann frá því að Opin kerfi sé nú eini íslenski vottaði þjónustuaðili HP Poly, sem sérhæfir sig í hljóð- og myndbúnaði í fyrirtækjaumhverfi.

Aukið jafnvægi vinnu og einkalífs

Gísli segir blandaða vinnu enn fremur gera fólki kleift að ná jafnvægi milli einkalífs og faglegra skuldbindinga; fjarvinna, auk ýmissa samvinnuverkefna, geri fólki mögulegt að sérsníða vinnuumhverfi og tímasetningar eftir þörfum, svo með lausnum frá tæknifyrirtækjum eins og Poly.

Ég sá í bloggi hjá Flex Index að tækniframfarir muni á komandi árum gegna lykilhlutverki fyrir fjarvinnu. Ljóst er að innan nokkurra ára má búast við nýstárlegum lausnum sem munu brúa enn betur bilið milli fjarvinnu og skrifstofuvinnu. Nýjungar munu festa blandaða vinnu enn frekar í sessi og ættu að stuðla að aukinni framleiðni.“

Gervigreindin mun gegna lykilhlutverki

Hann segir að fjarfundir muni skapa aukna gagnvirkni og líkja eftir hefðbundnum fundum. „Þá munu skýjalausnir halda áfram að þróast og efla aðgang að skrám, gögnum og samvinnusvæðum óháð staðsetningu. Þá má ekki gleyma gervigreind sem mun taka í auknum mæli við ýmsum verkefnum sem þarfnast endurtekningar, en slíkt mun tryggja möguleika starfsfólks á að einbeita sér að aukinni verðmætasköpun.“

Í ljósi þess ætti starfsfólk að geta tileinkað sér blandaða vinnu á óaðfinnanlegan hátt, finna hentugasta vinnustaðinn út frá verkefnum og persónulegum aðstæðum, að sögn Gísla. Slíkt muni leiða til aukins jafnvægis vinnu og einkalífs og starfsánægju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Ozzy er dáinn – en trendar hann?

Nína Richter skrifar: Ozzy er dáinn – en trendar hann?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Samfylkingin og Viðreisn á flugi í nýrri skoðanakönnun – málþófsminnihlutanum refsað

Orðið á götunni: Samfylkingin og Viðreisn á flugi í nýrri skoðanakönnun – málþófsminnihlutanum refsað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“