fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

8,7 milljarðar spöruðust vegna tæknilausna í Covid

Eyjan
Fimmtudaginn 26. janúar 2023 12:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í samstarfi við yfirvöld og heilbrigðiskerfið þróaði Origo stafrænar tæknilausnir í Covid-19 faraldrinum fyrir bólusetningar, sýnatökur, rafræn vottorð og skimun á landamærum. Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands spöruðust 8,7 milljarðar króna vegna Covid tæknilausna og 700 milljónir með skráningu í Heilsuveru fyrir Covid próf.

Ísland er komið langt í stafrænni þróun og sjálfvirknivæðingu en gæti tekið enn stærri skref innan velferðar- og heilbrigðiskerfisins. Samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar spöruðust 700 milljónir króna í heimsfaraldrinum með notkun Heilsuveru fyrir tímabókanir í sýnatöku og upplýsingar um niðurstöður úr sýnatökum.

Með notkun Heilsuveru var einfaldara fyrir einstaklinga að panta tíma í skimun og aukinn tímasparnaður fólginn í því fyrir bæði einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Mesti ávinningurinn af notkun lausnannavar þó fólgin í því að niðurstöður um smit bárust fyrr til einstaklinga og þeir sem ekki reyndust smitaður gátu sloppið fyrr úr sóttkví.

Meiri ábati en reiknað var með

Stærsti ábatinn af stafrænum tæknilausnum í faraldrinum, var að með því að fá niðurstöður úr skimun gegnum Heilsuveru með mun hraðari hætti en ella, gátu einstaklingar sem ekki voru smitaðir í sóttkví snúið aftur til vinnu.

Hagfræðistofnun mat að líklegast væri ábatinn af notkun Heilsuveru mjög vanmetinn en heildarsparnaðurinn að frádegnum kostnaði var 8,7 milljarðar króna. Margt var ekki tekið með í útreikningana m.a. sýnatökukerfið á landamærunum, vottorðin sem hægt var að sækja sjálfvirkt gegnum Heilsuveru og margt fleira.

Tæknin nýtt betur í kjölfar Covid

„Tækifærin eru endalaus innan heilbrigðistækni og skýrsla Hagfræðistofnunar ýtir undir mikilvægi þess að styðja við frekari þróun á heilbrigðistækni sem mun óhjákvæmilega ýta undir mikinn sparnað bæði fyrir heilbrigðisstarfsfólk en einnig almenning. Heilbrigðislausnir Origo þróa fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi. Allar þær lausnir sem við þróum eru með það í huga að styðja við störf heilbrigðisstarfsfólks og auka öryggi og gæði í þeirri heilbrigðisþjónustu sem er veitt,“ segir Arna Harðardóttir, sölu- og markaðsstjóri heilbrigðislausna Origo.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki