fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Sólveig Anna sakar Halldór um útúrsnúninga og látalæti – „Jarðsambandið er greinilega alveg farið“

Eyjan
Þriðjudaginn 24. janúar 2023 18:00

Sólveig Anna Jónsdóttir, mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), Halldór Benjamín Þorgeirsson, sé búinn að missa alla jarðtengingu. Ábyrgð hans sé mikil og hvetur hún hann til að koma aftur niður til jarðar og gera samning við Eflingu sem henti þeirra félagsmönnum.

Sólveig skrifar á Facebook:

„Útúrsnúningar og ofríki. Framkvæmdastjóri SA heldur því fram að samningsvilji Eflingar sé enginn. Jarðsambandið er greinilega alveg farið; samninganefnd Eflingar hefur lagt fram þrjú tilboð um kjarasamning og í hvert sinn fært sig nær viðsemjendum okkar, SA“

Hins vegar hafi enginn samningsvilji verið til staðar hjá Samtökum atvinnulífsins, þetta geti allir sem tóku þátt í viðræðunum vitnað um.

Sólveig Anna vísar til viðtals sem Halldór Benjamín veitti RÚV en þar hafi hann komið með skot á Eflingar-jakka sem samninganefnd Eflingar hefur klæðst í viðræðunum.

Sagði Halldór: „Ég hef hvatt Eflingu til þess að láta af þeim látalátum sem sjást á þessum samningafundum, með því að mæta með tugi manna í einkennisbúningum“

Sólveig segir þetta fáránlegan útúrsnúning og árás á samninganefnd Eflingar og klæðaburð meðlima hennar.

„Það er leitt að framkvæmdastjóri SA telji sig staddan í einhverri uppsetningu á UpstairsDownstairs þar sem yfirráð hans yfir vinnuafli höfuðborgarsvæðisins eru svo æðisgengin að þá ná til klæðnaðar og framkomu. Svo er ekki.“

Halldór sé þátttakandi í samningaviðræðum við stærsta verkalýðsfélag verka og láglaunafólks á landinu, félag sem hafi sjálfstæðan samningsrétt sem Halldóri beri að virða.

„Það er framkvæmdastjóri SA sem hefur með látalátum reynt að snúa grafalvarlegum kjaraviðræðum upp í leikhús útúrsnúninga og ofríkis. Hann virðist hafa talið sér trú um, eða látið telja sér trú um að SGS [Starfsgreinasambandið] með Vilhjálm Birgisson í fararbroddi, gerði kjarasamninga fyrir Eflingu. Svo er ekki.“

Tíminn sé kominn til að Halldór horfist í augu við þau „mistök sem hann ásamt öðrum mönnum gerðu þegar þeir handsöluðu á „maraþonfundum“ sínum fyrir jól að gera grófa tilraun til að svipta Eflingu sjálfstæðum samningsrétti, og neyða formann og samninganefnd félagsins til að taka við kjarasamningi annarra manna og annarra félaga.“

Ábyrgð Halldórs sé mikil og vonast Sólveig til að hann horfist í augu við þá ábyrgð og komi aftur niður til jarðar þar sem samninganefnd Eflingar dvelur og gera Eflingar-kjarasamning við félagsmenn Eflingar.

„Það er varla eftir neinu að bíða?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki