fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Eyjan

Þau eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis voru kynntar fyrr í dag í Borgarbókasafni Reykjavíkur í Grófinni, af formanni Hagþenkis, Gunnari Þór Bjarnasyni.

Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn um miðjan mars og hún felst í sérstöku viðurkenningarskjali og 1.250.000 kr.

Eftirfarandir höfundar og rit eru tilnefnd:

Anna María Bogadóttir. Jarðsetning. Angústúra.
Persónulegt og vekjandi rit um manngerð rými sem hvetur til yfirvegunar um uppbyggingu og niðurbrot.

Ásdís Ólafsdóttir og Ólafur Kvaran. Abstrakt geómetría á Íslandi 1950–1960. Veröld.
Vandað og fallegt rit um byltingaráratug í íslenskri myndlist. Ítarleg umfjöllun um tímabilið með myndum af einstökum verkum listamanna.

Ástríður Stefánsdóttir, Guðrún V. Stefánsdóttir og Kristín Björnsdóttir (ritstj.). Aðstæðubundið sjálfræði. Líf og aðstæður fólks með þroskahömlun. Háskólaútgáfan.
Hagnýtt fræðirit um þann einfalda en oft hunsaða sannleik að allir þjóðfélagsþegnar eigi að njóta grundvallarmannréttinda. Tímamótaverk.

Daníel Bergmann. Fálkinn. Anda.
Falleg og vönduð bók sem gefur góða innsýn í lifnaðarhætti fálkans og náið samband hans við íslensku rjúpuna, prýdd einstæðum ljósmyndum.

Helgi Þorláksson. Á sögustöðum. Bessastaðir, Skálholt, Oddi, Reykholt, Hólar, Þingvellir. Vaka-Helgafell.
Mikilvæg bók sem teflir niðurstöðum nýlegra rannsókna fram gegn hefðbundinni sýn á sögustaði.

Hjalti Pálsson. Byggðasaga Skagafjarðar. I.–X. bindi. Sögufélag Skagfirðinga.
Yfirgripsmikið fjölbindaverk, skrifað af þekkingu og stutt margvíslegum heimildum ásamt fjölda ljósmynda.

Kristín Svava Tómasdóttir. Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Sögufélag.
Saga Farsóttarhússins myndar ramma utan um óvæntar frásagnir og sjónarhorn sem skerpt er á með vönduðu myndefni.

Ragnar Stefánsson. Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta. Skrudda.
Vandað fræðirit um jarðhræringar á Íslandi stutt viðamiklum mæligögnum og frábærum skýringarmyndum og kortum.

Stefán Ólafsson. Baráttan um bjargirnar. Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks samfélags. Háskólaútgáfan.
Víðtæk og vel skrifuð þjóðfélagsfræðileg greining á þróun lífskjara og samfélagsgerðar á Íslandi.

Þorsteinn Gunnarsson. Nesstofa við Seltjörn. Saga hússins, endurreisn og byggingarlist. Þjóðminjasafn Íslands.
Ítarlegt yfirlitsrit þar sem lesendur fá glögga innsýn í aldarfar og atburði í kaupbæti með sögu Nesstofu fyrr og nú.

Viðurkenningarráð Hagþenkis er skipað fimm félagsmönnum til tveggja ára i senn og í því eru: Ársæll Már Arnarson, Halldóra Kristinsdóttir, Sigurður Sveinn Snorrason, Sússana Margrét Gestsdóttir og Svanhildur Óskarsdóttir. Verkefnastjóri er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis.

Bókakynning: Ritin verða kynnt af höfundum í Borgarbókasafninu í Grófinni laugardaginn 25. febrúar kl. 13-15.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn