fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Fordæma verkalýðsleiðtoga sem fagna brotthvarfi Drífu með ósmekklegum athugasemdum – Hafa áhyggjur af því ofbeldismenning nái yfir í hreyfingunni

Eyjan
Föstudaginn 12. ágúst 2022 09:54

Halldóra S. Sveinsdóttir formaður Bárunnar t.v.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags, hefur sent frá sér ályktun í kjölfar afsagnar Drífu Snædal úr forsetastóli ASÍ. Í ályktuninni kemur fram að stjórn stéttarfélagsins fordæmi allar tegundir ofbeldis og tilburði til eineltis og síðan eru viðbrögð vissra verkalýðsleiðtoga við brotthvarfi Drífu gagnrýnd og viðraðar áhyggjur stjórnarinnar að ofbeldismenning þessa hóps nái yfir í hreyfingunni.

„Það er búið að vera vægast sagt ömurlegt að fylgjast með þeim forystumönnum sem komu fram í fjölmiðlum og fögnuðu þessum sorgardegi með ósmekklegum athugasemdum á hennar störf sem á sér enga stoð. Fram kom hjá Drífu að ástæða afsagnar hafi verið aðallega rætnar persónuárásir og einræðistilburðir sem hafa reynt verulega á hana í starfi. Hún hefur lagt mjög mikla orku í að miðla málum til að fanga sem flest sjónarmið. Forsetinn mótmælti í vor uppsögnum starfsfólks Eflingar þar sem vegið var að grunngildum verkalýðshreyfingarinnar. Ekkert heyrðist frá formanni VR stærsta félagsins innan ASÍ né núverandi formanni Starfsgreinasambands Íslands. Nú hafa verið undirliggjandi hótanir um frekari hreinsanir starfsmanna verkalýðshreyfingarinnar. Þessi svokallaði armur hefur í gegnum tíðina gagnrýnt svokallað bákn verkalýðshreyfingarinnar sem að þeirra mati hefur ekki talað fyrir hönd láglaunafólks og þeirra sem minna mega sín. Nú er komin sú staða að þessir sömu aðilar eru orðnir að stóru valdamiklu bákni með sérhagsmuni að leiðarljósi. Stjórn Bárunnar stéttarfélags hefur verulegar áhyggjur af því að þessi ofbeldismenningin nái yfir í hreyfingunni sem stefnir í að vera ólýðræðisleg og óaðlaðandi,“ segir í ályktuninni.

Formaður Bárunnar stéttarfélags er Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, þriðji forseti ASÍ, sem hefur verið náinn samstarfsmaður Drífu. Á milli hennar og Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, eru litlir kærleikar. Halldóra tók við embættinu hjá ASÍ þegar Sólveig Anna hætti sem formaður Eflingar á sínum tíma og hefur Sólveig meðal annars uppnefnt hana sem „bakhergisstarfsmann“ og varðhund Salek-samkomulagsins.

Þegar allt fór í háaloft varðandi fjármál Eflingar og þá sérstaklega mikinn kostnað við heimasíðu félagsins þá viðraði Halldóra meðal annars áhyggjur sínar af fjármálunum g ýjaði að mögulegum fjárdrætti. Þá sagðist hún sjaldan hafa séð jafnljótar árásir og á starfsfólk Eflingar í kjölfar valdabaráttunar sem geisaði innan félagsins.

Yfirlýsing stjórnar Bárunnar í heild sinni:

Báran, stéttarfélag fordæmir allar tegundir ofbeldis og tilburði til eineltis.

Í fyrsta sinn í meira en 100 ára sögu Alþýðusambands Íslands hefur kona gegnt starfi forseta sem er merkur og stór áfangi. Drífa Snædal hefur staðið sig með sóma í öllum þeim verkefnum og áskorunum sem verkalýðshreyfingin hefur staðið frammi fyrir. Hún stóð vörð um kjarasamninga og lífeyrisréttindi launafólks á tímum heimsfaraldar. Drífa hefur verið í forsvari gegn undirboðum á vinnumarkaði og sýnt mikinn kjark í að verja mannréttindi og kjarasamninga launamanna.

Það er búið að vera vægast sagt ömurlegt að fylgjast með þeim forystumönnum sem komu fram í fjölmiðlum og fögnuðu þessum sorgardegi með ósmekklegum athugasemdum á hennar störf sem á sér enga stoð. Fram kom hjá Drífu að ástæða afsagnar hafi verið aðallega rætnar persónuárásir og einræðistilburðir sem hafa reynt verulega á hana í starfi. Hún hefur lagt mjög mikla orku í að miðla málum til að fanga sem flest sjónarmið. Forsetinn mótmælti í vor uppsögnum starfsfólks Eflingar þar sem vegið var að grunngildum verkalýðshreyfingarinnar. Ekkert heyrðist frá formanni VR stærsta félagsins innan ASÍ né núverandi formanni Starfsgreinasambands Íslands. Nú hafa verið undirliggjandi hótanir um frekari hreinsanir starfsmanna verkalýðshreyfingarinnar. Þessi svokallaði armur hefur í gegnum tíðina gagnrýnt svokallað bákn verkalýðshreyfingarinnar sem að þeirra mati hefur ekki talað fyrir hönd láglaunafólks og þeirra sem minna mega sín. Nú er komin sú staða að þessir sömu aðilar eru orðnir að stóru valdamiklu bákni með sérhagsmuni að leiðarljósi. Stjórn Bárunnar stéttarfélags hefur verulegar áhyggjur af því að þessi ofbeldismenningin nái yfir í hreyfingunni sem stefnir í að vera ólýðræðisleg og óaðlaðandi.

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands fór mikinn í viðtali á Bylgjunni þar sem hann sendi fráfarandi forseta vægast sagt kaldar kveðjur og tilnefndi forsetaefni. Stjórn Bárunnar, stéttarfélagsins vill koma því á framfæri að Vilhjálmur Birgisson var ekki að tala fyrir hönd félagsins og er ekki talsmaður félagsins sem er eitt af félögum innan SGS. Ekki hefur verið haldinn fundur innan formanna SGS þar sem samþykkt hafa verið fordæmalausar árásir á fráfarandi forseta ASÍ og tilnefningar á verðandi forseta ASÍ í nafni Starfsgreinasambandsins.

Starfsfólk verkalýðshreyfingarinnar hafa orðið fyrir hótunum og árásum um uppsagnir og þeirra störf dregin í efa. Báran, stéttarfélag hvetur aðildarfélög að standa vörð um það góða starf sem hefur verið unnið innandyra og þann hóp sem starfar þar.

Báran, stéttarfélag hafnar öllu ofbeldi, einelti og ærumeiðingum innan hreyfingarinnar sem á að sýna gott fordæmi. Rúmlega 100 ára saga Así einkennist af baráttu og sigrum launafólks. Stöndum vörð um að halda þeirri vegferð áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki