fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Eyjan

Andrés Helgi Hallgrímsson nýr fjármálastjóri Borgarplasts

Eyjan
Miðvikudaginn 18. maí 2022 17:55

Andrés Helgi Hallgrímsson Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Helgi Hallgrímsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Borgarplasts og tekur hann við af Ernu Eiríksdóttur. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Andrés starfaði áður sem sölustjóri sjávarútvegslausna hjá Wise í tæp 6 ár.  Hann hefur viðtæka reynslu af fjármálum, rekstri og ráðgjöf og hefur verið fjármálstjóri og framkvæmdastjóri hjá ýmsum fyrirtækjum. Hann starfaði meðal annar sem framkvæmdastjóri hjá Omnis, Cintamani, Múlakaffi og A4.  Hann var áður fjármálstjóri Kraftvéla og KFD AS dótturfélags Kraftvéla sem var umboðsaðili Komatsu í Danmörku. Andrés er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands. Andrés er kvæntur Snædísi Kristinsdóttur og saman eiga þau þrjú börn.

„Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Andrés til liðs við Borgarplast. Hann hefur ekki aðeins gríðarlega reynslu af rekstri fyrirtækja sem fjármálastjóri heldur hefur hann einnig starfað sem framkvæmdastjóri og þekkir rekstur fyrirtækja mjög vel. Framtíðin er björt hjá Borgarplasti og góður hópur starfsmanna tilbúin að takast á við þau tækifæri sem eru fram undan í okkar rekstri,“ er haft eftir Matthíasi Matthíassyni, framkvæmdastjóra Borgarplasts í tilkynningunni.

Borgarplast var stofnað í Borgarnesi árið 1971. Fyrirætkið framleiðir fiskiker, frauðkassa fyrir ferskan fisk, húseinangrun og ýmsar fráveitulausnir á borð við olíuskiljur, brunna og rotþrær. Í Mosfellsbæ rekur Borgarplast hverfisteypu fyrir fráveitulausnir og fiskiker.  Borgarplast er stærsti söluaðili einangraðra fiskikerja á Íslandi ásamt því að selja fiskiker til allra heimsálfa. Í Reykjanesbæ starfrækir fyrirtækið frauðverksmiðju.

Borgarplast leggur áherslu á að nota endurvinnanleg hráefni og hefur verið leiðandi framleiðandi á vörum sem ætlaðar eru til hreinsunar á frárennsli frá fyrirtækjum og heimilum. Félagið hefur þannig alla sína tíð lagt sitt á vogaskálarnar í umhverfisvernd og þjónustu við fyrirtæki sem þurfa að uppfylla lög og reglugerðir um hreinlæti og umhverfisvernd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi