Eyjan

Öskur eða flugeldar um áramótin? - Furðar sig á útspili Umhverfisstofnunar

Mynd
Myndin er samsett.

Það er orðin árleg hefð hér á landi að rífast um flugelda, hvort sem það er af umhverfissjónarmiðum eða til að vernda gæludýrin þá skiptist almenningur í tvennt um hver áramót og í ár var engin undantekning á því. Ritstjórn Morgunblaðsins gerir þetta að umræðuefni sínu í ritstjórnardálkinum Staksteinar í Morgunblaðinu í dag.

Einstaklingurinn sem ritar Staksteina virðist ekki vera virkilega hrifinn af útspili Umhverfisstofnunar fyrir áramótin ef marka má pistilinn sem birtist í blaðinu í dag. Sá sem heldur á penna furðar sig á því að stofnunin sé með herferð á samfélagsmiðlum þar sem fólk er hvatt til þess að öskra árið burt í staðinn fyrir að sprengja flugelda.

„Nú er ekki vitað til að það sé stefna stjórn­valda að stöðva flug­elda­sölu um ára­mót enda eru þeir leyfi­leg sölu­vara hér á landi og eiga sinn tíma. Þekkt er að þeir eru helsta fjár­öfl­un­ar­leið björg­un­ar­sveita lands­ins. Flug­elda­sal­an er hrein­lega for­senda þess að þær geti starfað eins og þær hafa gert.“


Í Staksteinunum segir að Umhverfisstofnun telji að björgunarsveitirnar geti fjármagnað sig með öðrum hætti en sá sem ritar pistilinn segir að það sé „athyglisvert innlegg“ frá stofnuninni.

„Svo hef­ur Um­hverf­is­stofn­un líka sett fram til­lögu um hvernig Íslend­ing­ar geti komið sér upp nýj­um ára­móta­hefðum, sem er auðvitað líka hlut­verk Um­hverf­is­stofn­un­ar. Þar er til dæm­is velt upp þeirri hug­mynd að „fjöl­skyld­an myndi safn­ast sam­an á miðnætti og „öskra burt árið“.“


Að lokum kemur höfundur Staksteina með tillögur um að ganga enn lengra þegar kemur að því að skipta hlutum út fyrir öskur en það virðist vera gert í kaldhæðni eins og margt annað í pistlinum.

„Auðvitað hlytu all­ir að hlakka til ára­mót­anna og fá að öskra burt árið. En hvers vegna að láta staðar numið þar? Margt annað en flug­eld­ar get­ur verið skaðlegt í miklu magni. Hvað með að enda máltíðina á gaml­árs­kvöld með sam­eig­in­legu öskri í stað þess að bera fram ís­inn? Eða á aðfanga­dags­kvöld, er ekki miklu hátíðlegra að öskra inn jól­in en að inn­byrða dí­sæt­an eft­ir­rétt­inn?“