fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Icelandair Cargo tekur fyrstu breiðþotuna í notkun

Eyjan
Fimmtudaginn 8. desember 2022 15:35

Icelandair Cargo tekur nýja breiðþotu í gagnið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icelandair Cargo hefur tekið við sinni fyrstu Boeing 767 breiðþotu sem félagið mun nýta í fraktflug sitt. Flugvélin kom til landsins á dögunum og flýgur sitt fyrsta fraktflug til Liège í Belgíu í kvöld. Flugvélin flaug lágflug yfir Reykjavíkurflugvöll síðdegis í dag. Auk Liège verða reglulegir áfangastaðir New York og Chicago en flogið verður þrisvar sinnum í viku á hvern áfangastað. Von er á annarri 767 þotu í flotann í byrjun næsta árs og hyggst félagið þá hefja beint fraktflug til Los Angeles auk þess að auka tíðni á aðra frakt áfangastaði sína.

Icelandair Cargo hefur boðið upp á fraktflug með tveimur Boeing 757 fraktvélum um árabil samhliða því að nýta farþegaflug Icelandair til fraktflutninga. Breiðþoturnar munu skapa fjölmörg ný tækifæri fyrir inn- og útflutningsaðila en þær hafa meira en tvöfalda flutningsgetu miðað við Boeing 757 þegar horft er til rúmmáls auk þess sem flugdrægi þeirra er mun lengra.  Það gefur tækifæri til þess að opna nýja markaði sem ekki er flogið til á farþegavélum í dag.

Beint fraktflug til Los Angeles á næsta ári

Lengra drægi skapar mikil tækifæri til að fjölga áfangastöðum og þannig áformar félagið að bjóða upp á beint fraktflug til Los Angeles á næsta ári. Þar með mun dreifikerfi Icelandair Cargo ná á þrjú mikilvæg markaðssvæði í Bandaríkjunum — Los Angeles á vesturströndinni, Chicago í miðríkjum og New York á austurströndinni. Í Kaliforníu er ein mesta ávaxta- og grænmetisræktun í heimi og tenging þangað getur stytt flutningstíma á þessum vörum til Íslands mikið. Íslenskir fiskútflytjendur hafa byggt upp sterkan markað á austurströnd Bandaríkjanna en með reglubundnu flugi til Kaliforníu og til miðríkjanna skapast ný og spennandi tækifæri. Að auki sér Icelandair mikil tækifæri í því að byggja upp tengimiðstöð fyrir frakt á Keflavíkurflugvelli, líkt og félagið hefur gert í farþegaflugi. Markaðurinn fyrir vöruflutninga á milli Evrópu og Norður-Ameríku er sá stærsti í heimi og eru mikil vaxtartækifæri fyrir Icelandair Cargo á þeim markaði.

Asía gæti bæst við í framtíðinni

„Við eru mjög spennt að hefja fraktflug á breiðþotum. Umsvif okkar í fraktflutningum hafa aukist mikið undanfarin ár og munu nýju vélarnar skapa enn meira rými til vaxtar. Við höfum skýra framtíðarsýn um að byggja upp fraktmiðstöð á Keflavíkurflugvelli fyrir vöruflutninga á milli Evrópu og Norður-Ameríku, auk þess sem Asía gæti bæst við í framtíðinni. Með því að bæta við tengingum opnast ný og spennandi tækifæri fyrir íslenska inn- og útflutningsaðila, sérstaklega hvað varðar flutninga á ferskvörum,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki