Eyjan

Segir lög hafa verið brotin í skjóli borgarstjórnar - „Við smá­borg­ar­arn­ir kæm­umst aldrei upp með að brjóta lög­in á þenn­an hátt“

Mynd
Örn Falkner er afar ósáttur með tæmingu lónsins.

„Í tvo ára­tugi, 4-5 daga vik­unn­ar, hef ég gengið yfir stíflug­arð Árbæj­ar­lóns til vinnu. Ég naut heilandi áhrifa af veru lóns­ins í vetr­ar- og sum­arstöðu og alls þess fjöl­breyti­lega fugla­lífs sem þá var. Lónið var orðið jafn heil­agt mér eins og Ganges Ind­verj­um. Það gera sér ekki all­ir grein fyr­ir hvað vatn og spegl­un þess hef­ur góð áhrif á sál­ina.“

Svona hefst pistill sem organistinn Örn Falkner skrifar en pistillinn var birtur í

Morgunblaðinu

sem kom út í dag. Haustið 2020 var Árbæjarlón tæmt að frumkvæði Orkuveitu Reykjavíkur en framkvæmdin hefur verið gríðarlega umdeild. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði til að mynda í október síðastliðnum í samtali við

Vísi

að lónið hafi verið tæmt í skjóli nætur og að ekki hafi verið gert í samráði við einn né neinn.

„Einræðislega aðgerð forstjóra OR“

Örn kallar þetta „einræðislega aðgerð forstjóra OR“ og lýsir svo afleiðingunum. „Botn­inn og drull­an standa víða upp úr. Minj­ar til 100 ára sem heita áttu friðaðar að engu gerðar í ósátt við lög og tilskil­in leyfi,“ segir hann.

„Árbæj­ar­virkj­un­in var byggð vegna lóns­ins og má ætla að lítið lón hafi einnig verið þar fyr­ir í Árbæj­arkvísl­inni. Ótrú­legt er að borg­ar­stjór­inn DBE þótt­ist ekk­ert vita af þess­um gjörn­ingi þó að borg­in eigi rúm 93% í OR. Það var dap­ur­legt að fylgj­ast með eft­ir­leikn­um, vinnu­flokk­ar slógu gróður úr hólm­in­um til að setja hann niður í drull­una sem eft­ir stóð og varúðar­skilt­in mörg vegna þess að drull­an var hættu­legri börn­um í mín­um huga en lónið í 100 ár.“

Erni hefur finnst sorglegt að fylgjast með því hvernig fuglalífið er búið að breytast eftir að lónið var tæmt. „Ég kom tví­veg­is að dauðum gæs­um, sá líka máva á flugi með and­ar­unga í kjaft­in­um og álft­ar­unga sem týndu líf­inu,“ segir hann.

„Fylgd­ist með þegar fleiri teg­und­ir komu á sinn gamla stað en fóru jafn­an aft­ur. Hef ekki orðið var við end­ur­nýj­un á vaðfugl­um þarna ná­lægt. Í syðri ánni við stífl­una sem var alltaf full af laxi hef­ur maður varla séð fisk á annað ár þótt það komi auðvitað fyr­ir. Aft­ur á móti sést lax í Árbæj­arkvísl­inni en það er svo sem ekk­ert nýtt þótt þeir geti nú raf­vætt seiði og fylgst bet­ur með þar.“

Segir að framkvæmdin verði kærð

Örn segist hafa talað við nágranna sína og að þeir séu allir á móti þessu. „Maður geng­ur ekki leng­ur glaður til vinnu eft­ir svona nátt­úru­spjöll,“ segir hann svo.

„Ég vil vekja at­hygli á að áin get­ur varla tal­ist upp­runa­leg nú eins og þeir vilja vera láta. Elliðavatn er uppistöðulón, stíflu­vegg við barm vatns­ins (þar sem hægt er að stjórna flæði til ár­inn­ar) þyrfti að taka og þá myndi hálft Elliðavatn hverfa við sjálfsagt litla hrifn­ingu nærstaddra.“

Að lokum bendir Örn á að framkvæmdin var kærð til nefndar umhverfis- og auðlindamála. „Gjörn­ing­ur­inn var ólög­mæt­ur,“ fullyrðir hann.

„Sam­kvæmt niður­stöðu ber OR að skila lón­inu í upp­haf­legu ástandi en meiri­hlut­inn ásamt borg­ar­stjóra þrá­ast við og vísaði til­lögu sjálf­stæðismanna um að fylla lónið á ný frá. Þeir ger­ast því lögbrjótar og var mál­flutn­ing­ur þeirra sann­leik­an­um til skamm­ar. Við smá­borg­ar­arn­ir kæm­umst aldrei upp með að brjóta lög­in á þenn­an hátt. En málið fer vænt­an­lega lengra og við sjá­um hvort einræðið eða lýðræðið sigr­ar að lok­um.“