fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Takk dagur Fossa tileinkaður Píeta samtökunum

Eyjan
Fimmtudaginn 24. nóvember 2022 12:48

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, hjá skrifstofu Píeta samtakanna við Amtmannsstíg í Reykjavík

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Venju samkvæmt velur starfsfólk Fossa fjárfestingarbanka málefni sem stutt er með söfnun Takk dagsins. Á Takk daginn renna allar þóknanatekjur bankans ásamt beinum framlögum frá viðskiptavinum til góðs málefnis.

Takk dagur Fossa fjárfestingarbanka fer fram í áttunda sinn í dag, 24. nóvember. „Þessi viðburður hefur vaxið í gegnum árin og er tilhlökkunarefni í hvert sinn. Við fögnum tækifærinu til að geta, í samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila, staldrað við og þakkað fyrir það sem vel er gert,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.

Á hverju ári velur starfsfólk Fossa málefni til að styðja og í ár eru það Píeta samtökin. „ Að þessu sinni rennur afrakstur dagsins  til þess góða starfs sem unnið er á vettvangi Píeta samtakanna, en þau sinna mikilvægu forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur í slíkum aðstæðum,“ segir Haraldur og kveðjur mikinn einhug hafa verið meðal starfsmanna um valið.

„Píeta samtökin eru að stærstum hluta rekin fyrir frjáls framlög og ánægjulegt að geta stutt við þau með veglegum hætti. Starfsemin er umfangsmikil og þjónusta veitt allan sólarhringinn. Þarna er unnið mikilvægt og þakkarvert starf.“

Auk Fossa taka Kauphöllin (Nasdaq Iceland) og uppgjörsfyrirtækið T Plús þátt í Takk deginum með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa innan dagsins og renna þau í staðinn til söfnunarinnar. Þá gefur auglýsingastofan TVIST vinnu sína sem tengist deginum.

Allt frá upphafi hefur verið mikil ánægja með framtakið og vöxtur í söfnuninni. Á síðasta ári söfnuðust 21,6 milljónir króna sem runnu til Jafningjaseturs Reykjadals og árið áður söfnuðust 12,6 milljónir til handa Geðhjálp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki